Af moldu ertu komin ....

Geggjaðar hugmyndir sem týndar eru af lífsins tré. 

Ég er búin að vera svo orkulítil og hugleiddi hvort að himintunglin væru farin að þrýsta mér oní jörðina.  Margt að gerast í vinnu og vinnu sem skilur eftir sig minni tíma.  Hins vegar er tíminn okkar nægur í akkúrat það sem við kjósum.  Mér sýnist á öllu að ég sé komin upp úr moldinni og ætla að dusta af tásunum og taka flugið á ný!

Tilbúin að taka flugið ...
Hver skyldi áfangastaðurinn verða?

Úti skín sólin eins og hún eigi lífið að leysa, fuglarnir syngja og inni situr húsmóðirin og bíður eftir því að kaffið myndi framtíðina.  Þvottavélin kjaftar inní þvottaherberginu og potturinn er að ilja sig fyrir kvöldið.  Ég ætla að taka prinsessuna mína í bíltúr og hugmyndin var að kíkja í kvikmyndahús í Murcia héraði ..... eiga svona stelpustund!

Njótið dagsins

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér heyrist að þetta gæti orðið ágætis dagur hjá ykkur mæðgum.  Farðu vel með þig elsku Zordis.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 13:53

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nú ertu fersk eftir regnið

Hrönn Sigurðardóttir, 12.5.2008 kl. 14:04

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Mig langar svo að geta lesið í bolla.

Stelpustund, eigið yndislegan dag mæðgur

Sporðdrekinn, 12.5.2008 kl. 14:09

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er með mold á tásunum

Knús á ykkur bíóstelpur

Solla Guðjóns, 12.5.2008 kl. 15:14

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Vonandi áttuð þið góða stelpustund

Huld S. Ringsted, 12.5.2008 kl. 20:15

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Stelpustundir lýsa upp lífið. Það er allt lifandi í kringum þig og þú hlýtur að fá orkuna þína aftur! Hún hefur bara tekið sér smáhvíld. En lifnar á ný .... ... legg svo á og mæli um.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.5.2008 kl. 21:44

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Helgarknús til þín

Marta B Helgadóttir, 12.5.2008 kl. 22:17

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 Ég er vissum að þið hafið skemmtilega stelpustund mín kæra Þórdís.

Kær kveðja til þín inn í sólina.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.5.2008 kl. 09:57

9 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Viss um að þið hafið átt yndislega stund saman........

Stundum þarf maður að gefa sér tíma til að hlaða batteríin, hvort það er gert með stelpustund, kósíkvöldi með kallinum eða bara fara út, horfa á náttúruna og bora tásunum oní moldina.....  skiptir ekki öllu máli, bara að njóta þess að vera til........

vorkveðja til þín

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 13.5.2008 kl. 13:04

10 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Þeir eru fallega hvítir vængirnir þínir Þórdís mín. Ég hef verið að þvo annarskonar fatnað í dag. Dustaðu af tánum og taktu flugið.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 13.5.2008 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband