13.5.2008 | 22:09
Að elska .....
Mæðgur
Að elska, er sú tilfinning eina, sú hreina! Að eiga þá átt í nætur húma að mega gleyma sér í faðmi þess er elskar. Dóttir kær, þú eina dásamlega meyja ..... Ég elska þig!
Vinkona mín sagði mér, njóttu unglingsáranna, þau eru yndisleg! Ég ætla að njóta hverrar mínútu með dóttur minni og fá að verða hluti af hennar lífi. Stundum finnst mér eins og við fjarlægjumst en þá gef ég mér tóm og hugleiði minn eigin aldur og sé hvað þessi dásamlega vera er að gera.
Lítið blóm
vex úr grasi
stækkar mest
lífsins hljóm
ástar fasi
lærdóms vers.
Hún er ég í eigin holdi, stúlkan hreina, ástin eina, stúlkan mín.
Flokkur: Menning og listir | Breytt 14.5.2008 kl. 08:58 | Facebook
Athugasemdir
Hrönn Sigurðardóttir, 13.5.2008 kl. 22:48
Hún er svo yndisleg elsku dóttir þín alveg eins og mamma hennar.
Knús og kossar til ykkar
Takk elsku Þórdís fyrir að gefa svona mikið af þér.
Kristín Katla Árnadóttir, 13.5.2008 kl. 23:01
Fallegar mæðgur og falleg orð
Sporðdrekinn, 14.5.2008 kl. 02:01
þetta er alveg ofsalega falleg mynd af ykkur mæðgum ..
Margrét M, 14.5.2008 kl. 08:35
Já Þórdís mín æskan er til að njóta hennar vaxa og mótast.Ástin á börnunum okkar er ólýsanleg.Öllu æðri.
Flott mynd af ykkur
EN ég fékk loksins jólapakka í gær kvöldi og það get ég sagt þér að ég lagði flísina upp að mér og fann til svo mikillar ástar.veit að þetta er svoldið væmið en svona var það.
Þúsund kossar og þakkir ástin mín
Solla Guðjóns, 14.5.2008 kl. 09:08
Yndisleg færsla og falleg mynd af flottum mæðgum
Dísa Dóra, 14.5.2008 kl. 09:22
Þið eruð lánsamar að eiga hvora aðra að, fallegu mæðgur.
Hugarfluga, 14.5.2008 kl. 10:09
Fallegar mæðgur og hugljúf orð!
Móðurástin er örugglega sterkasta og hreinasta tilfinning sem til er
og dvínar ekkert þó börnin vaxi úr grasi......
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 14.5.2008 kl. 18:38
Móðurástin er öllum æðri finnst mér. Nú er frumburðurinn og eina dóttirin að verða 30 ára, ástin minnkar ekki með árunum hún eykst. Knús á þig og þína fallegu dóttir.
Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 20:30
Flott mynd af ykkur mæðgunum. Hvað er það sem móðirin vill ekki gera fyrir barnið sitt. Hún getur jafnvel þerrað tár gegn um síma.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 14.5.2008 kl. 22:20
Falleg mynd af ykkur mæðgunum :)
Knús og kossar
Vatnsberi Margrét, 15.5.2008 kl. 17:44
Fallegar mæðgur
Huld S. Ringsted, 15.5.2008 kl. 22:29
Takk elsku Þórdís mín fyrir þín fallegu orð í minn garð. Hafðu það gott og fjölskyldan þín líka.



Kristín Katla Árnadóttir, 16.5.2008 kl. 13:39
Mikið eru þið fallegar mæðgur .
Knus
Kristín Gunnarsdóttir, 16.5.2008 kl. 15:01
þetta er dásamleg ástarjátning til dóttur þinna kæra kona
blessi þig á fallegu föstudagskvöldi
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 16.5.2008 kl. 17:04
Gullfalleg mynd af ykkur Þórdís mín
Marta B Helgadóttir, 17.5.2008 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.