Hot hot og heitari ...

.... orð að sönnu að konan er búin að vera hot uppá síðkastið.

Lasarus gerði viðvart og konan var haldin heljarkvölum.  Byrjaði með verk í vömb en leiddi konu í kojuna og þar lá hún í einangrun þar til að heilagur andi lagð hönd á höfuð hennar og blés lífi.

En ég er öll að koma til, fékk ekki tíma hjá lækni fyrr en næsta þriðjudag og þá sagði ég við Fjallið að heilagur andi myndi lækna mig áður en að dr.Jekyl gæti komið oní mig eitri snáksins.

En nóg um það .... sumarið er komið og Íslandið nálgast.  Ég finn að tíminn er að renna frá mér og nú er bara eitt framundan!  Skyrpa rækilega í lófana og halda uppteknum hætti.

Þar sem ég fjallaði um ástina og að elska í síðustu færslu þá langar mig að setja inn strákana mína.

Strákarnir mínir ....

Yndislegir báðir 2 nafnarnir

Þegar sumarið er grænleitt eins og sjórinn, þegar brosin eru gulleit eins og sólin og tilfinningin rauðleit eins og ástin þá er víst lítið annað sem kona þarf.

Ég sagði við son minn um kvöldmatarleytið;

Ég;  viltu sjá mótorhjólið sem mamma vill eiga? 

hann;  já

Ég,  Sjáðu þetta sæta chopper hjól ...

hann;  vá mamma, má ég eiga það þegar þú verður amma?

Ég;  Já, en ætli ég verði ekki asnaleg og allt of feit á þessu ...

hann;  AFHVERJU, þú ert svo æðisleg!

Hugur okkar eldri getur verið svo langt frá gleðinni .... wonder why?

Góða helgi

Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi ég vona það mun lagast hjá þér elskan mín. Knús og kossar til þín og fjölskyldu þína. Börnin þín eru yndisleg og fjallið þitt. þú ert yndisleg.Góða helgi elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.5.2008 kl. 22:55

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ljós, ég treysti því að allt sé í lagi með þig. Láttu flytja þig til Íslands, ef þú heldur að allt sé ekki í lagi. Í alvöru. Nú er ég dálítið áhyggjufull. Mailið mitt er gudnya@regis.is

Hlustaðu á sjálfa þig. Kærleikur, GAA 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.5.2008 kl. 23:49

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fallegir strákarnir þínir - eins og þú sjálf

Hrönn Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 00:24

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Mikið eru strákarnir þínir fallegir.  Þú hlýtur að vera stolt af svona flottum strákum. Og fallegt og einlægt svar sonar til móður.  - Mikið held ég hann elski þig. - Það veistu náttúrulega sjálf.  Má ég eiga það þegar þú ert orðin amma. Dásamlegt svar.-  Kær kveðja til þín í sólina, frá Ísalandinu kalda.   

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.5.2008 kl. 01:44

5 identicon

Knús og kossar og heilustu og heitustu heilsukveðjur til þín, sætasta dúlla!!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 02:25

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Fallegir strákarnir þínir. Það kom bara svona "óóóóóh.." andvarp frá mér þegar að ég las spjall ykkar mæðgina. Yndislegt svar frá drengnum. Mamman verður að passa sig að rífa sig ekki niður fyrir framan börnin. Ja... og ekki fyrir framan sjálfa sig heldur

Mig hefur alltaf langað í mótorhjól, finnst þau eitthvað svo sexí. En mér finnst þau líka eitthvað svo hættuleg og það er þess vegna sem að ég þeysist bara um á mótorhjóli í huganum

Bata kveðjur og heilunar anda mun ég senda yfir haf og lönd til þín, snúllan mín

Sporðdrekinn, 17.5.2008 kl. 03:04

7 identicon

Fallegir strákarnir þínir og yndislegt spjallið þitt við son þinn

Bryndís R (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 08:10

8 Smámynd: Hugarfluga

Þvílík augu!!  Knús og kossar til þín.

Hugarfluga, 17.5.2008 kl. 10:24

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Fallegir strákarnir þínir! Farðu vel með þig fallega kona

Huld S. Ringsted, 17.5.2008 kl. 12:27

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Elsku litla sæta rófan auðvitað finnst honum mamma æði á mótorhjóli eða ekki.

Láttu þér batna pjólan mín

Solla Guðjóns, 17.5.2008 kl. 20:44

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ertu ekki að ná þér elskan??  vona það.  Farðu vel með þig 

Ásdís Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 21:51

12 Smámynd: Sigrún

knús á þig engla kroppur !!
Hlakka til sumarsins ég og þú með bjór og grill bara geggjað
knús á ykkur bið að heilsa nöfnunum og prinsessunni

lot´s of lov and kisses

Sigrún, 17.5.2008 kl. 22:22

13 Smámynd: Brynja skordal

Æðislega fallegar myndir af ykkur láttu þér batna Elskuleg hafðu ljúfan sunnudag

Brynja skordal, 17.5.2008 kl. 23:25

14 identicon

Elsku Þórdís mín. Veistu ekki hvað þú er æðislega frábær????  

Það elska þig allir sem kynnast þér  - sama hvort það er persónulega eða af afspurn!

Stattu

Edda í Englandi (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband