19.5.2008 | 21:56
Eitthvað svo ljómandi ...
.... dagur á enda!
Pirr pirr og kurr kurr en bíltúr og verkefni kláruð í vinnunni. Verslaði í matinn og ætlaði að versla "skífur" en það voru allir svo uppteknir í iðnaðarmannastepustöðinni ..... Ég var þyrst og ákvað að kaupa vatn og viti konur að ég keypti mér einn og hálfan líter og hló úr mér pirrið!
Tengdó eiga 46 ára brúðkaupsafmæli á morgun, mamma og pabbi eiga 40 ára brúðkaupsafmæli í ár, í júní og við eigum 3ja ára brúðkaupsafmæli í október ....
Lítið að gerast annað en að það er nóg um að vera og gera.
Ætlaði að skrifa um dúfur
en setti á mig húfur
fann svo trefil og sokka
hár mitt greiddi og augnabrúnir plokka
lít nú á Fjallið mitt væna
já,
Karlpunginn eina
......
þetta kalla ég líf.
"amma hefðu nú sagt ástarpungur"
Allavega þá kíkti ég á stjörnuspá fyrir geitur .....
Steingeit: Þú verður beðinn um að fara út af þægindasviðinu þínu og ganga inn í heim furðulegra persóna. Þú færð mikla athygli á þessu nýja svæði. Njóttu hennar.
"Hlakka til að verða furðuð af öðru fólki enda er þetta furðuveröld"
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Já það segirðu sko satt..þetta er furðuveröld og ég er enn að furða mig á sjálfri mér!!!
Steina á afmæli á morgun 20.05 1960. Láttu það ganga...þetta eru skilaboð frá Gunna Palla
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.5.2008 kl. 22:05
Hlakka til að heyra frá furðunum í furðuveröldinni sem þú furðar þig ekki á, jafnmikið og þau uppfurða sig, yfir furðunni.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.5.2008 kl. 22:10
Skemmtileg lesning að vanda, hafðu það gott elsku Zordis.
Ásdís Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 22:15
Er ekki það sama að vera furðulegur og skrítinn? Ef að svo er þá finnst mér þeir sem eru furðulegir venjulegir, allavega ef að ég horfi á mína fjölskyldu
Sporðdrekinn, 19.5.2008 kl. 22:23
http://steina.blog.is/blog/steina/
á afmæli á morgun, fædd 1960. Gleðjum hana!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.5.2008 kl. 22:37
Svona er veröldin, fríkuð og fríð, blá og blíð, strembin og stríð, hraustleg og hríð ...
knús og kveðjur frá einum hjartahlýjum Norðlendingi

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 08:07
Hafðu það gott
Dísa Dóra, 20.5.2008 kl. 09:47
Allt og allir eru furðuverk.......algert furðuverk sem að guð bjó til....
Lovjú
Solla Guðjóns, 20.5.2008 kl. 11:22
ja há furðuveröld dásamleg,
knús til þín, minntir mig á að ég þarf líka að plokka á mér augnabrýrnar.
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 13:20
alltaf nauðsyn að versla í matin
Margrét M, 20.5.2008 kl. 14:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.