Umheimurinn ....

... er pennavinur minn!

Ég fann bréf sem ég skrifaði umheiminum, ég kalla það nú bara að spella umhverfið.

Bréfið skrifaði ég árið 2004 í ágústmánuði og skapaði þar með margt sem hefur komið inn í líf mitt og fjölskyldunnar í dag.  Hlutir sem eru ekkert svo fyrirsjánlegir, velgengni ást og umhyggja.

Þegar ég les yfir bréfið sem fór til almáttugs hafa allir undirstrikaðir þættir ræst, allar uppljómanir eru nú staðreyndir.  Bréfið er sönnun þess að hugurinn hefur engin takmörk, heimurinn er okkur megnugur eins og hver annar matseðill sem við leggjum fyrir okkur.

Ég bloggaði reyndar einu sinni staðhæfingar sem síðar urðu eins og ég sá þær og upplifði.  Já, lífið er dásamlegt, lillablátt og kærleiksríkt þegar horft er framhjá hörmungum heimsins sem við ættum að gefa minni gaum, þ.e. minni hugsun.  Biðja ávallt fyrir velsæmi og velgengni heimsins þannig að allir menn og allar konur uppfylli rétt sinn að lifa sómasamlegu lífi.

Stundum höfum við gnægtir með tómann brunninn rétt eins og við höfum ekkert þegar yfir flæðir. 

Jafnvægið er það dásamlegasta í huga og hjarta okkar smáu mannvera.

There is only one power, spirit is the creator of all there is.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Þetta er svo satt hjá þér!

Ég ætla að stela síðustu setningunni, tja allavega fá hana lánaða

Sporðdrekinn, 20.5.2008 kl. 19:51

2 Smámynd: Hugarfluga

Bravissimo, Þórdís! Ætla að taka þig mér til fyrirmyndar. 

Hugarfluga, 20.5.2008 kl. 20:12

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef íhugað að skrifa bréf í þessum dúr! Vissi bara ekki hvert ég ætti að senda það. Nú veit ég það......

Knús á þig mín kæra og megi krafturinn vera með þér

Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 20:52

4 Smámynd: Dísa Dóra

Já maður á einmitt að biðja þess að allir geti fullnýtt sína góðu eiginleika og lifað í sátt við sjálfan sig og aðra.

Knús til þín

Dísa Dóra, 20.5.2008 kl. 21:20

5 Smámynd: Vatnsberi Margrét

knús og kram

Vatnsberi Margrét, 20.5.2008 kl. 21:22

6 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert stórkostleg manneskja Þegar ég hugsa um það þá hef ég sko fengið stórar gjafir frá lífinu...

...ég ætla að skrifa þær niður framvegis...litlu molarnir fara svolítið framhjá manni og gleymast...

Vá mér þykir undurvænt um þig yndislega kona

Heiða Þórðar, 20.5.2008 kl. 22:53

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta hefur þá verið svona "secret" bréf (er alltaf að lesa bókina) ég þarf að fara að prófa þetta.

Knús

Huld S. Ringsted, 20.5.2008 kl. 22:55

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég hef skrifað þau nokkur bréfin,sum hef ég notið að tæta í smátt og henda frá mér fyrir fullt og alt,sum hafa verið mér til áminningar um allt það góða sem ég hef fengið að njót,suma hafa verið um hverning ég megi njót og nýta betur.Þessi bréf voru frá mér til mín og frá mér til eyðingar.

Solla Guðjóns, 21.5.2008 kl. 07:42

9 Smámynd: Margrét M

þetta hef ég gert þetta er gott fyrir sálina

Margrét M, 21.5.2008 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband