Sumir dagar ...

 ...... eru betri en aðrir dagar. 

Það fer ekki á milli mála að sumir dagar eru betri en aðrir dagar, hins vegar er enginn dagur verri en annar því við höfum alltaf tök á því að breyta deginum með eigin sjálfi! 

Kyrrðinni,

eins og Steina bloggvinkona fjallaði um, hún gaf mér þann skilning og er ég henni sammála að stundum þurfum við að meðtaka kyrrðina til að gefa okkur gaum og gera gott betra.

Vandlilfað í fallega heiminum okka

Ég held mig við undirbúning og set hér inn smá vinnslumynd  .... hluti af stórum striga, það er svo gaman að mála og njóta þess að gera það sem áhugasviðið kallar á! 

Undirbúningur efni fyrir sýningu 006
  

 ýmsar myndir 004

Það getur líka verið leiðinlegt að mála en það þýðir víst lítið annað en að vera meðvitaður og njóta þess hvort sem það er skemmtilegt eða leiðinlegt.

Bling .....

Vissuð þið að komið er á markaðinn tyggjó sem er gegn rasisma í heiminum, gegn mismunun í heiminumþ  Þetta tyggjó er svart eða hvítt og er fólk hvatt til þess að finna einingu heildarinnar!

Vissuð þið að Vinskapur er eitt það dýrmætasta sem til er.

Mynd í vinnslu

Myndbrot

Já, ég er nú bara svolítið klikk en það er ekki verra eða kanski er það verra!  Veit ekki .....

Ég er boðin í veislu í kvöld og ætla að dekra við mig þennann seinnipartinn.  Bera krem á skraufþurra fæturnar á mér.  Ef ekki þá enda ég öll í blóði eftir klór.  Svo ætla ég að naglalakka neglur og dekra við mig .... Örugglega óvelkomin hár sem ekki mega sjást þegar kona fer í kjól!

Svo segi ég bara

ÁFRAM ÍSLAND


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flottur blái liturinn í kjólnum......

En já það er rétt hjá þér. Það er ýmislegt hægt að læra af Steinu og alltaf gott að kíkja á hana. Eins og þig reyndar líka.......... Elsk´ykkur báðar

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2008 kl. 14:01

2 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Glæsilegar myndir :)

Dekur er alltaf gott fyrir sálina.

Vatnsberi Margrét, 23.5.2008 kl. 14:32

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já það er sko Rétt hjá þér Þórdís mín að vinskapur er það dýrmætasta sem maður á,

Þú ert Perla. Skemmtu þér vel í kvöld elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 23.5.2008 kl. 17:04

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Þetta er sko rétt með vinskapinn!

Nei það er sko ekkert verra að vera klikk! Furðulegt, klikkað, öðruvísi, skrítið... fólk er örugglega glaðara en þeir sem eru normal! Það er allavega mín reynsla

Dekraðu þig dúllan mín og eigðu svo yndislega stund í veislunni!

Sporðdrekinn, 23.5.2008 kl. 17:59

5 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Hlakka til að sjá myndina fullfrágengna. Njóttu veislunnar vel. alltaf gaman að sýna sig og sjá aðra.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 23.5.2008 kl. 21:02

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hvað er að vera klikkaður?  Er það að vera normal? - Góða skemmtun í veislunni Þórdís og hafðu það sem allra best um helgina.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.5.2008 kl. 23:01

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 24.5.2008 kl. 13:48

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Æðislegur þessi blái litur

Marta B Helgadóttir, 24.5.2008 kl. 15:59

9 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Kristín Gunnarsdóttir, 25.5.2008 kl. 09:04

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Ekki spurning að það er hægt að læra margt af Steinu,hún vekur mig oft til umhugsunar um eitt og annað eins og þú krútta.

Innilega sammála með vinskapun.

Smússssss..........

Solla Guðjóns, 25.5.2008 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband