26.5.2008 | 21:37
Ósofin kjéddling ...
.... gapandi og geyspandi!
Konu óx ásmegin og fyrr en varði var klukkan orðin 0400 í morgun og ákafinn við pennslastrokurnar þvílíkur að tíminn bara hvarf. Hvert hann fór veit ég varla nema kanski í formi þessa litla ljóðs sem ég sýni ykkur. Svona var stemmingin ....
Rómantík akrýll á flís
Stundum gleymum við stundinni og það sem er sniðugt við stundina að hún bara fór og ég naut mín alein í náttmyrkrinu. Ég held ég fari snemma að sofa í kvöld ..... Kanski ég haldi það út til 0200 en þá er eiginlega nótt en ekki morgun!
Á þessari stundu situr kjéddlingin, hálf úfín og heitt í skinni þar sem Iberíuskagi lætur sólarglæturnar blekkja sig ár eftir ár. Það er hljótt í húsinu okkar, börnin sofa og Fjallið er að koma sér til hlíðar.
Kanski ég fái mér einn kaffi fyrir svefninn, hlýtur að virka vel á þreyttann ofurkroppinn.
Góða nótt og munið að elska það að vera
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Falleg mynd hjá þér! Alveg þess virði að vera ósofin einn dag
Það er nægur tími til að sofa þegar við verðum gamlar......
Hrönn Sigurðardóttir, 26.5.2008 kl. 21:41
Þú ert æðisleg! Góða nótt Þórdís mín
Huld S. Ringsted, 26.5.2008 kl. 22:26
Það er nú allt í lagi að vaka ef árangurinn er svona frábær!!
Yndiskona ertu.
Bið að heilsa fjallshlíðinni.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 26.5.2008 kl. 22:32
Það er dásamlegt að gleyma stundinni þegar maður er að vinna. - Þá vex manni ásmeginn, af vellíðan.-
Vonandi hefur kaffið sömu góðu áhrifin, og gefur þér góða nótt og fallega drauma.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 26.5.2008 kl. 23:21
Falleg mynd og þú ert dásamlega góð knús á þig og fjallið þitt og börnin.
Kristín Katla Árnadóttir, 26.5.2008 kl. 23:47
Falleg myndin þín og orðin
Sporðdrekinn, 27.5.2008 kl. 02:26
falleg mynd
Ólafur fannberg, 27.5.2008 kl. 08:50
Þessi mynd er algjörlega æðisleg. Kaffi fyrir svefninn er mjög gott...fyrir mig alla vega.
Hér á Akureyri er steikjandi hiti búinn að vera og núna sit ég kófsveittur við að pikka á tölvuna í herberginu "mínu" ... og bíð eftir sjónvarpsmanninum, svo þegar hann er farinn þarf ég að gera hluti og fara svo á stað og svo í vinnuna ... já já ... þetta er lífið: sveitt, heitt og yndislegt ... svona eins og við erum jú!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 08:53
Það er dásamlegt að gleyma sér í þeim verkefnum sem veita okkur gleði og frið í sinni. Verkin þín og skrif eru dásamleg og það situr eftir í sálinni. Takk fyrir að vera til.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.5.2008 kl. 11:39
Gott að vita af þér á svæðinu, myndin ar alveg frábær.
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 27.5.2008 kl. 22:04
Ég vona að þú hafir fengið meillið frá mér knús inn í nóttina.
Kristín Katla Árnadóttir, 27.5.2008 kl. 22:50
Ósofnar kerlingar eru langflottastar!
Heiða Þórðar, 27.5.2008 kl. 23:46
Guðborg Eyjólfsdóttir, 28.5.2008 kl. 09:07
æi þetta eru svo ofsalega fallegar flísar hjá þér ..
Margrét M, 28.5.2008 kl. 15:20
Ég hef bara eitt vid ad baeta í thessu tilfelli.......... Medan laufin sofa, liggja spadarnir andvaka!
Vid vaentanlega sjáumst á Íslandi í júlí........ kvikindid er á leidinni á skerid í 1 1/2 mánud eda svo.... tad var víst uppi samningur um ad dreypa á blódi Krists og eiga skemmtilegar samraedur.
Kvedja frá Nátthrafninum í Barcelona
Adolf Jónsson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 03:10
Takk fyrir yndislega færslu og yndislegar myndir þú kynþokkafulla og lífsglaða yndismær
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 29.5.2008 kl. 21:48
Vá hvað þetta er falleg mynd hjá þér
Dísa Dóra, 29.5.2008 kl. 22:16
fallegt hugarbrot !
takk fyrir það.
knús í daginn
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 31.5.2008 kl. 15:03
Ertu ennþá sofandi?
Heiða Þórðar, 1.6.2008 kl. 13:53
Svo hlý og falleg

Kaffi er gott, svefninn er það líka.
Knús á þig mín kæra vinkona
Elín Björk, 1.6.2008 kl. 20:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.