Blár kaffibolli og bið ...

... táknin í bollanum hafa myndað stígvél og buffaló sem stendur í langri halaróu þar sem einn leiðir annann!  Fallega mótaðar kaffislettur sem segja allt um framtíðina.

Einhverfan sem býr í sjálfinu leiddi mig í nýja föndurbúð þar sem ég keypti slatta af strigum.  Sá nýjar stærðir sem mér fannst upplagt að prófa.  Þurfti svo sem ekki mikið að stappa stálinu í mig og smellti 6 strigum á afgreiðsluborðið, brosti og borgaði.  Ég var eini viðskiptavinurinn og fékk afbragðsþjónustu.

Ég átti erindi vegna nafnabreytinga og hitti þar fyrir hundrað manns og þar á meðal eina konu sem talaði mikið við sjálfa sig (ég t.d. lét einhverfuna nægja og ræddi ekkert við mig .... þrátt fyrir að mikið frjálsræði ríkir hér almennt) ....

Ég, hér er mín að brjótast út þar sem innilokunarkennd og bið hefur einkennt kerlingarkrúttið .... Já, að mér þá ók ég eftir strandlengjunni, og á eftir mér var eldri frú, sem keðjureykti og lá á flautunni.  Þessari konu kynntist ég á bílastæðaplani en þar lá hún á flautunni þar sem gamla konan á undan henni var ekki nægjanlega fljót að setja í fimmta gír!!!  JÁ, ÞETTA ER LÖNG SAGA!

En til að gera hana stutta svo biðin verði ekki frekari þá lá konan á flautinni á öllum ljósum og ég gjörsamlega trompaðist úr hlátri á rauðu ljósi .... Þeir sem vissu ekki af konunni hafa upplifað mjög svo skellihlæjandi konu = mig. 

Nú sit ég og bíð í upphafi nýs dags, blái kaffibollinn er fullur af myndum sem gætu sagt svo margt en segja hins vegar ekkert! 

Já og svo rétt í lokin á meðan ég bíð þá dreymdi mig að ég væri komin með bringuhár og sportrönd. 

Saet í Kvöld

Sæt í kvöld er olía á striga

Á meðan ég bíð gæti ég lakkað á mér neglurnar .... góð hugmynd!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til þin og fjölskylduna. það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 12.6.2008 kl. 00:05

2 identicon

Blár kaffibolli og rautt ljós og hlátur... og bringuhár --- ég get ekki toppað þetta. Býð þér kaffibolla með mynd, hvítt ljós, og bros ... en slatta af bringuhárum... ég toppa þau hjá þér!

Kærar kveðjur elsku dúlla

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 00:25

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Mig langar svo að geta lesið í bolla, prufaði um daginn og allt sem að ég sá voru þornaðir kaffidropar hehe

hahaha ert þú klikkaða kellingin á rauðaljósinu sem talar og hlær með sjálfri sér? Ég fíla hana, en ekki flautukellinguna!

Sporðdrekinn, 12.6.2008 kl. 00:46

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Svava frá Strandbergi , 12.6.2008 kl. 02:29

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Kíkji stundum inn á bloggid titt læt verda af tví ad kvitta núna.takk fyrir oft gód skrif og skemmtileg.má bjóda tér ad koma í minn bloggvinahóp?Kann bara ekki á tad ad bjóda.kv Gudrún

Gudrún Hauksdótttir, 12.6.2008 kl. 05:53

6 Smámynd: Solla Guðjóns

OOOOOO ertu hottý gaur í svefni

Mér  er farið að hlakka til að sjá afrakstur alls sem þú ert að gera life.

Yfir höfuð leiðist m´r á rauðu ljósi og væri nú alveg til í að sjá eina skellihlæjandi meðan aðrir eru að drepast úr pirringi.

Knús á þig bollakona

Solla Guðjóns, 12.6.2008 kl. 11:03

7 identicon

Það er alltaf svo gaman hjá þér, þú lætur ekkert fara í taugarnar á þér, lífsglöð og yndisleg manneskja.

Haltu áfram að vera svona, þú ert frábær

Arna (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband