Vaxandi vitund mannkyns ...

... já, fer hún vaxandi eða hvað?

Þegar hugur og sál vaxa ekki heldur minnka hvernig verður þá framhaldslífið?  Er til eitthvað sem heitir framhaldslíf?  Getum við fullyrt án þess að snerta, getum við lifað án þess að anda, erum við efni eða erum við ekkert?

Nýr heimur NÚNA með leiðinni að fjársjóði þess er við leitum öll sem eitt en á misvægum grundvelli.

Sporðdreki bloggvinkona mín bloggaði um fegurð og þá vaknaði spurningin um hvað er fegurð, hvernig er hún og hvers vegna er allt sett niður í munstur eftir kúnstarinnar reglum.

Orkan er hjá okkur akkúrat núna, þegar við bíðum, þegar við grátum, þegar við drögum andann fyrir augnablikið þegar við erum .... ástfangin, hugfangin, viðurkennd og elskuð .....

Hvað er ástin

Olía á striga, Hvað er ástin 20 x 20

Ástin myndast í orðum, á borðum þar sem hjartað smeygir sér í þitt úr mínu.  Af bikar þínum byrgi ég þær góðu unaðs stundir og hjartans kæru fundi.

Læf goes on

Ég er eins og vorið

alveg að spring - a

í svörtum kjól með slæðu

í fangi svarta læðu.

Heart

spurningin um að spring -a

bara .....

Oooog,

glugga í Echart Tolle

kveikja hungur

...........

narta svo í Fjallið

og

velta sér í hlíðinni .....

Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Nákvæmlega "Hvað er fegurð?"

Fegurð liggur í svo mörgu, hún fer eftir skapi og okkar eigin duttlungum. Það sem er fagurt í dag getur verið ljót á morgun. Persónur missa fegurð ef að þær sýna okkur hlið á sér sem að okkur líkar ekki við.

Staðir sem að okkur fannst eitt sinn fallegir geta orðið ljótir í okkar huga ef að við eigum vondar minningar þaðan. Það sama á við um föt, lög, mat, lykt og svona mætti lengi telja.

Að sama skapi geta persónur og hlutir sem að okkur eitt sinn fannst ljót orðið falleg í okkar huga.

Fegurðin er í orðum þínum kæra bloggvinkona

Sporðdrekinn, 12.6.2008 kl. 19:19

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þessu getur engin svarað hvort það sé til framhald líf eða ekki ég minnsta kosti vildi óska þess en það er rétt hjá þér.... Orkan er hjá okkur akkúrat núna fallega orðað hjá þér Þórdís mín Falleg myndin þín og ljóðið.knús

Kristín Katla Árnadóttir, 12.6.2008 kl. 19:24

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er svo sammála ykkur hér að ofan......eeeeennnnn kélling er orkulausari en allt í augnablikinu.

Falllega orðað Þórdís mín og fallleg mynd

Solla Guðjóns, 12.6.2008 kl. 21:04

4 Smámynd: Anna Gísladóttir

Börnin mín eru mesta fegurðin í mínu lífi.  Þau taka vissulega mikla orku en gefa hana líka margfalt til baka bara með brosinu sínu

Anna Gísladóttir, 12.6.2008 kl. 21:34

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú kannt að koma þessu í orð dúllurassgatið mitt

Heiða Þórðar, 12.6.2008 kl. 21:37

6 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Fegurdin liggur í svo mörgu,fangadu bara augnablikid orkan er hér vid turfum bara ad virkja hana...Falleg myndin tín Tórdís mín og elskuleg skrifin tín.Knús inn í nóttina

Gudrún Hauksdótttir, 12.6.2008 kl. 23:08

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Fallega orðað Þórdís. Fegurðin er svo margt bara spurning hvernig við horfum á hana og hvar við sjáum hana mér finnst lífið bara fallegt þessa dagana

Huld S. Ringsted, 12.6.2008 kl. 23:25

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

"Fegurðin er í augum þess sem horfir" sagði spakur maður eitt sinn........

Það var samt ekki ég. Ég segi horfðu með hjartanu og þá sérðu fegurðina. 

Hrönn Sigurðardóttir, 13.6.2008 kl. 00:20

9 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Fegurðin er allt um kring, meðal annars í orðum þínum og myndum, Þórdís mín!

Ég trúi á að við lifum oft, en samt erum við hér nú, í núinu og eigum þess vegna að lifa lífinu lifandi

Er ekki hér inná á hverjum degi, þessa dagana, en les samt allar þínar færslur, því þær auðga minn anda.

Takk fyrir mig, mín kæra

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 13.6.2008 kl. 09:36

10 Smámynd: Dísa Dóra

Fegurðin er lífið finnst mér.  Annars er það ákkúrat rétt hjá þér að það eina sem við höfum öruggt er núið og því  um að gera að nýta það sem best.  Ég hins vegar trúi á framhaldslíf en það breytir samt sem áður ekki þeirri staðreynd að núið er það sem við eigum að njóta.

Eigðu góðan dag

Dísa Dóra, 13.6.2008 kl. 12:56

11 identicon

Lífið er dásó hreint út sagt!
Það er skoho kominn ferðahugur í mína, hlakka alveg gazalega til að hitta þig mín kæra!
Knús á ykkur!

Elín (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 14:11

12 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Fegurðin kemur innan frá.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 13.6.2008 kl. 19:51

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Það er bara eitt sem ég get sagt um fegurð: Beauty is pain.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.6.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband