13.6.2008 | 22:40
Þegar óskin lifnar eins og nýsprungin rós ....
... lítill knúbbur fullur lífs, mótaður af móður þess er elur. Hvers væntum við og óskum?
Allt í einu fékk ég samviskubit yfir því að óskir mínar rætist. Að óskin um lífið hið góða snerti mig og umvefji þeim eina silkifaðmi er kona getur óskað.
Samviskubitið (kanski ekki réttasta orðið) eða kanski umhugsunin um þessa skrítnu tilfinningu fékk ég á blogginu hennar Huld bloggvinkonu þegar ein bloggvinakona hennar talaði um áhyggjur þess að enginn myndi óska friðarins og heimsins okkar án stríðs!
Leyndarmálið mikla, tæknibeyting hugans, sciense of mind!
Hvers óska ég mér?
- velgengni?
- veraldlegra hluta?
- kringlu með morgunkaffinu?
- heilbrigði barna minna?
- góðra stunda?
En, er það rétt að við óskandi mannverur óskum aldrei friðar í heimi hér, að við beitum okkur ekki fyrir frelsi og lausn þjáninga heimsins....... Já, hvers óska ég þegar ég óska mér?
Ég veit hvers ég óska og ég veit að við fáum öll yfirdrifið nóg úr góssins brunni. Við verðum að vera hrein í hjartanu, óska án sjálfselsku og eigingirni. Styrkur og máttur bænarinnar getur breytt mörgu ef við bara trúum því og leifum hjólinu að rúlla.
Gæðin eru gullinn kostur
óskir glitra í hjarta
ástarstund
þín yndis lund
meyjan ilhýra bjarta
...
Hvítur og blár mygluostur
lyktin eina svarta
ástarfund
glæsta sprund
elskunnar sinnar hjarta.
Af öðrum heimi Olía á striga 20 x 50
Ég er eitthvað undin, veit eiginlega ekki afhverju en það er nú ekki til að spekulera í.
EN, hvers óska ég mér í raun, hvers?
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:43 | Facebook
Athugasemdir
Hamingju?
Knús á þig engillinn minn, hlakka til að hitta þig og knúsa, spjalla með kringlu yfir morgunkaffinu á meðan grizlingarnir leika lausum hala
Elín Björk, 13.6.2008 kl. 22:52
Knús á þig elsku Þórdís mín þú er engill í guðs mynd takk fyrir að koma til mín þegar ég á erfitt. Knús inn í nóttina.




Kristín Katla Árnadóttir, 13.6.2008 kl. 23:15
Ég óska friðar í heiminum, heims án grimmdar. Mér verður víst seint við þeirri ósk.
Ég óska mér líka margs annars, en mest óska ég þó ró og frið í hjarta mínu og minna. Því með því hlýtur hamingjan að koma.
Sporðdrekinn, 14.6.2008 kl. 02:22
innlitskveðja
Ólafur fannberg, 14.6.2008 kl. 04:30
Stórt knús á tig mín kæra ,ad vera undin er hluti af okkar nátturu ,kannski ertu tad ekki tegar ég rita tessar línur og kannski........... vid erum svo breytileg og tad er ad hinu góda.Annars værum vid svo vodalega flöt og leidinleg dýr og enginn nennti ad vera med okkur
Ég mæli med ad vera undin,súr,hávær,grætin,glöd ,og allt tar á milli á stundum..
Éigdu góda helgi
Gudrún Hauksdótttir, 14.6.2008 kl. 09:04
Gleymdi.
Takk fyrir bloggvináttuna.....
Gudrún Hauksdótttir, 14.6.2008 kl. 09:11
Þórdís: Þetta hefði ég ekki getað sagt betur. Þó ég feginn vildi. Sumar og sól til þín og þinna.
Bergur Thorberg, 14.6.2008 kl. 09:32
Hver óskar ekki friðar og kærleika........svona þér að segja þá gleimi ég ansi oft að hugsa um þessa hluti.
Ég hef verið að taka eftir að þ´´u ert farin að mála æoftar persónur með opin augu

Solla Guðjóns, 14.6.2008 kl. 17:08
Ósk mín er friður og kærleikur til alls þess sem lifir og hrærist hér á jörð, skilningur og samhygð til allra manna og að við getum skilað heiminum betur til afkomenda okkar, en við tókum við honum.
Að öfund og græðgi í heimi linni. Takk fyrir fallegar myndir, falleg skrif og fyrir að vera bloggvinkona mín.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 14.6.2008 kl. 19:36
Ég veit hvers ég óska mér og ég veit hverjar líkurnar á því eru.
Eina ósk - ég væri ekki í vafa hvers ég óskaði mér...
knús og kveðjur á þig, dúlla!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.6.2008 kl. 20:19
Ég mundi óska þess að "Friðarins Guð bænheyrði okkur, sem þráum það eitt að koma á friði á jörðu".
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2008 kl. 22:31
Óskir um óskir frá óskum til óska. Það er lífið. Bjartir víbrar sendast hér með frá mér til þín.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 14.6.2008 kl. 22:54
Knús og kossar inn í daginn
Heiða Þórðar, 15.6.2008 kl. 10:26
Þú óskar þér eitthvað fallegt.
Kristín Katla Árnadóttir, 15.6.2008 kl. 11:51
Svala Erlendsdóttir, 15.6.2008 kl. 11:57
Kringla og kúmen
kastast hér
knús og kossar
baula sér
titrandi fossar
skjálfa hér
hrun við baulu er
fagur friður
finnur hver ?
baula (IP-tala skráð) 15.6.2008 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.