Bjútíblundur ...

... Þyrnirósarsvefninn ljúfi og vakning til lífs á ný!

Ég er farin að gelta af ferskleika, var orðin svo þreytt eftir miklar vökur, sjálfsskaparvíti algert.

Sólin er komin í grillgírinn og það er gott að sitja inni við með kaffibolla við hönd.  Ég er rétt skriðin frammúr og er sem segir allt önnur kona.

Elín vinkona kom í heimsókn til mín og er líf og fjör á þessum bæ þar sem drengjaglamur ómar um húsið.  Í gærkvöldi fórum við út að borða á pizzustað hér í bæ og nutum okkar.  Íris Hadda dóttir mín fór á lokaball í skólanum og eftir það færðum við henni afskaplega fallegt armband sem hún getur bætt á perlum og skrauti.  Ég hafði hugsað mér að þegar henni gengur vel þá færum við saman og hún veldi sér fylgihlut á bandið sem verður henni vonandi metið og kært.

Framundan er hádegisverður með frænku og Oddu ömmusystir frá Eskifirði og hópur af Reyðfirðingum meðíför líka ....  Hitti norðfirðinga í gær og svei mér þá ef ég hafi ekki fundið blessun Sérans.

Morgunleikur

Morgunleikur

Nú er dagur að kvöldi kominn, hádegismaturinn var rosalega góður og félagsskapurinn eftir því.  Hér er setið heima við og málað af kappi í góðum félagsskap!

Ég setti inn myndina morgunleik og vona að þið heyrið gal hanans og hrifningu hennar .......

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Dóra

Gott þú náðir að hvílast vel skvís.  Hljómar sem flott gjöf sem dóttir þín fékk og gaman að geta bætt við armbandið sem tákn um góða frammistöðu.

Knús til þín

Dísa Dóra, 21.6.2008 kl. 19:55

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Farðu vel með þig kæra Þórdís mín. Það hefur verið mikið að gera hjá þér. En flott gjöf sem þið gáfuð dóttir ykkar svo er alltaf gaman að hafa góðan félagsskap. Myndin er flott og ég mun heyra gal hanans.

Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 21.6.2008 kl. 19:57

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Skemmtileg gjöf þetta armband. Ég vona að ég vakni við fyrsta hanagal. Veitir ekki af að fara að vakna fyrr á morgnana.

Svava frá Strandbergi , 21.6.2008 kl. 20:33

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sniðugar svona gjafir sem minna á góðu stundirnar! Ég er viss um að hún kann að meta það.

Hrönn Sigurðardóttir, 21.6.2008 kl. 23:12

5 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Vona að ég komist á sýninguna þína í Reykjavík í haust!

Hafðu það gott með þínum!

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 22.6.2008 kl. 00:16

6 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Skemmtileg hugmynd med armbandid.Fardu nú vel med tig svo tú getir haldid áfram ad mála svona fallgar myndir.

Knús inn á gódann dag.

Gudrún Hauksdótttir, 22.6.2008 kl. 08:57

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Guð hvað það hefur verið gaman að hita þína yndislegu vinkonu aftur.

Ég vaknaði við fj..verki í skrokknum........hefði gjarnan viljað vakana við hanann þinn.....fallleg mynd og felleg hugsun á bakvið gjöf Írisar Höddu..

Solla Guðjóns, 22.6.2008 kl. 13:20

8 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Til að njóta sín vel, þarf fólk að vera vel hvílt. Njóttu þess að vera í góðum félagsskap.Falleg mynd og mér finnst ég heyra hanagalið. Til hamingju með dótturina.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 22.6.2008 kl. 19:32

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Bið mikið vel að heilsa Norðfirðingum og Reyðfirðingum, en þó allra bezt Eskfirðingum. Oddnýju man ég svo vel eftir, eins og ég hef víst sagt þér.

Gott að þú ert í góðum gír, kella kær.
 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.6.2008 kl. 21:02

10 identicon

Elsku Þórdís.  Ég heyri ekki hanagalið  - (enda vön að sofa langt fram yfir það..!) en ég sé mjög vel tenginguna á milli þessara góðu vina.  Myndin er frábær!! 

Góð hugmynd með armbandið  

Edda í Englandi (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 22:55

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið ertu góð takk fyrir kveðjuna.

Kristín Katla Árnadóttir, 23.6.2008 kl. 11:37

12 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Glæsileg mynd

Sniðug gjöf handa Írisi Höddu :)

Vatnsberi Margrét, 24.6.2008 kl. 13:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband