Það er vont ...

... að vera háður þriðja aðila með aðgerðir.  Þegar þú getur ekki gripið inní og gert hlutina sjálfur.

Það er bæði vont og svekkjandi að mikilvægir hlutir staldri við án þess að fylgja huga þínum.  Ég hef jafnan vitað að það sem þú vilt að framkvæmist sé best að gera bara sjálfur (æ nó, eiginlega galli) og gera það strax.  Af hverju að bíða til morguns með að taka ákvörðun þegar hún getur verið tekin í dag.

Þegar hlutirnir liggja fyrir þá erum við ekki háð neinum nema ákvörðunum okkar sjálfra.

Þegar staðan er svona er best að fara á hæsta hól og blása nokkrar bifukollur, eiga jafnvel heilan bauk af sápukúlum og óátekna kampavínsflösku.  Sitja á hólnum sem iðar í léttri golunni, grasið sem iljar fótum þínum vefur þig umhyggju náttúrunnar og þú skreytir himininn með gegnsæjum sápukúlum.

Þú dreypir á töfrandi kampavíni og bubblurnar verða að þeirri eins sem þú ein getur ákveðið og formarð.  Ef heimurinn væri eins og sápukúla sem þyrlaðist í þúsund eindir við lendingu.  Grastopparnir keppast við að grípa þig og drekka næringu þína og visku.

Eina Ósk

Eina Ósk

Já stundum er lífið vont gott .... en þá þarf að finna jafnvægið, finna baukinn með sápukúlunum, finna hólinn og horfa á aðstæður frá hæstu hæðum.  Kampavínið er ágætt með þó skemmtilegra að draga góðan vin með sér á hólinn til að skála fyrir því góða.

Hóllinn er staður sem öll vandamál gleymast og nýr heimur opnast.  Kanski ég skríði bara inn í hólinn og horfi á lífið sem er undir rótum bifukollunnar .... hvernig væri það?

Stundum ráðum við ekki við aðstæður og þá er best að leyfa tímanum að líða.  Tímann á að nota vel og vinna vel með því hann kemur aldrei aftur eins og hann birtist okkur.  Já, ég ætla að hætta að láta þetta pirra mig og láta tímann liða eins og vatnið sem leitar leiða til sjávar!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú verður að kíkja við á Gónhól á Eyrarbakka næst þegar þú heimsækir landið bláa. 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 17:02

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hárrétt hjá þér! Láttu tímann líða..... það gefur einnig ákveðna fjarlægð á hluti

lovjú

Hrönn Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 17:52

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Það er það eina sem maður getur ekki haft nein áhrif á er tíminn. Hann liður hvað sem tautar og raular. Að visu mishægt eða mishratt, allt eftir upplifun og smekk. Gangi þér vel í þínu tíma, elsku dúlla.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.7.2008 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband