Bíbí og blaka með vængjaþyt ...

Að lifa í lífsins söng þar sem smáfuglarnir taka á móti þér með útbreiddum vængjum sínum.  Þú ert ein í heimi frelsis þar sem ekkert getur þig stöðvað!

Við búum yfir innra mætti þess að geta.  Eina hindrunin í lífinu erum við sjálf því allar heimsins dyr standa okkur opnar, allar leiðir liggja í átt að hamingjunni.  Afleiðing og Orsök.

Paul Ramses er að fara erfiða leið en með aðstoð og kærleika umheimsins, kærleika fólks sem komið hefur fram á blogginu, fólk sem ritar nöfn sín á undirskriftarlista um að veita blessuðum manninum hæli á Íslandi.  Kærleikur er öflugasta vopnið og það verður ánægjulegt þegar Hr. Ramses kemur til baka og fær að faðma konu sína og lítið barn. 

Helgin er framundan og margt spennandi sem við ætlum að gera með fjölskyldu og vinum.

Fotos artisticas

Í gegnum laufin sá ég glytta í augu þín blíð.  Svo makindarlegur og rólegur yfir heimskupörum okkar mannanna.  Samt þakka ég fyrir að vera það sem ég er því ég veit að þú ert þarna á bak við laufblöðin til halds og trausts!

Góða helgi kæru vinir.

Huld ég óska þér sérstaklega velgengni og lukku inn í morgundaginn þegar opnun verslunar ZikZak á sér stað á Akureyri.  Ég verð með þér í huganum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Góða helgi, mín kæra!

Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt.

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 4.7.2008 kl. 15:13

2 Smámynd: Ólafur fannberg

Góða helgi gamla

Ólafur fannberg, 4.7.2008 kl. 17:07

3 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Góða helgi :)

Vatnsberi Margrét, 4.7.2008 kl. 21:59

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ljúfasta helgi ljósið mitt, sit hér í stofunni heima hjá mér með karlkrúttinu mínu og gleðst yfir líðandi stund 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.7.2008 kl. 22:04

5 identicon

Góða helgi elsku besta Zordis

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 5.7.2008 kl. 09:25

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða helgi elsku besta Þórdís.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.7.2008 kl. 10:14

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég vona innilega að Paul Ramses  komi aftur til konu sinnar og barns.

Knús ljúfust.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.7.2008 kl. 10:17

8 Smámynd: Didda

Góða helgi

Didda, 5.7.2008 kl. 14:52

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Krúttið mitt kæra: Hafðu það gott á þakinu í grilli og gleði með vinum og öðru góðu fólki!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 5.7.2008 kl. 20:15

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Takk Þórdís mín fyrir fallega kveðju

Huld S. Ringsted, 5.7.2008 kl. 22:22

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 5.7.2008 kl. 22:51

12 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.7.2008 kl. 20:34

13 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Vonandi áttiru góda helgi mín kæra Zordís...Vid vorum ad drukkna í vinnu svo fekk ég góda heimsókn.Semsagt gód helgi hjá mér og mínum.

Knús til tín.

Gudrún Hauksdótttir, 7.7.2008 kl. 05:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband