9.7.2008 | 18:24
Hvernig var ....
.... Doddilíus bloggvinur minn, piri piri kjúlla snillingur og launmaður Angelinu Jolie og sambýlismaður Veigu, spurði mig hvernig gærkvöldið mitt hefði verið????
Það heppnaðist vel, ég tók á móti fólkinu sem er hið yndislegasta og tekinn var tappi úr Cava flösku og var dreipt á, spjallað og hlegið.
Leyndarmál og umræður um andleg málefni léttu geð okkar og við náðum flott saman. Skrítið þegar þú hittir fólk í fyrsta skipti, skrítið ... já, því þá finnum við akkúrat galdurinn sem geislar á milli.
Hjúfr ..... flísin kallaði á konu
Skjöldur var þó fyrri til að finna sína leið.
Svo er það Hrönnslan sem er með lítið afkvæmi í fæðingu. Ég viðurkenni að hafa ekki verið dugleg sem skildi en það hefur ýmislegt truflað tilveru konu. Svo sem vinnan, heimsóknir og sjálfselska!
Rósin er akrýl mynd á striga 20 x 50 en skemmdist í skjálftanum. Hrönn ég man við vorum að grínast um að myndin yrði verðmetin og bla bla bla en aldrei datt mér í hug að til þess þyrfti sjálfsmorðstilraun dúllunnar sem Rósin er.
Sem endranær þrátt fyrir mótvægi þá er lífið gott og heitt. Elín var að fara eftir 3ja vikna dvöl og ég held svei mér þá að hún skilji óskir mínar um ekta íslenska golu.
Kvöldið var gott, þegar að gestirnir fóru setti konan sem fyrr segir pastarétt með mozzarellaosti í ofn, einnig potteldaður hrísgrjónaréttur og allir fóru sáttir á vömb í hátt!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hrönn Sigurðardóttir, 9.7.2008 kl. 18:29
Ég skil Hrönn...ég á nefnilega rósir
og hvevær fóru þið spánarpæjur svo í hátt?
man eftir að hafa átt við ykkur nokkur orð
Solla Guðjóns, 9.7.2008 kl. 18:35
Huld S. Ringsted, 9.7.2008 kl. 22:19
Knús á þig elsku Þórdís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 9.7.2008 kl. 23:00
Njóttu dagsins.
Kristín Katla Árnadóttir, 10.7.2008 kl. 11:41
Vildi alveg sitja með þér yfir Cava og spjalla um andleg málefni. Hvernig væri að láta það gerast????
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.7.2008 kl. 20:53
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.7.2008 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.