10.7.2008 | 22:46
Rúllur og rauðar rósir ....
Eftir miðnætti, aldimmt úti og gítarglamur hljómar úr stofunni. Rödd litlu krakkadúllunnar hljómar í gengum tóninn en hann er núna að ráðfæra sig við föður sinn um afhverju millistykki séu svona stíf.
Krakkakrúttið var að enda við að bjóða móður sinni ísfótabað með dropa af Fairy útí og ætlar sjálfur að skella sér í sjálfvirka nuddarann sem þarf sín 3 kw af stuði til að geta nuddað .... Þessi elska!
Á mínu heimili er ekkert sem heitir Alzheimer light heldur dílar frúin við STRONG ið þessa dagana. Gott ef hún nær að muna daginn.
Bíllinn var blæjaður og Sigrún vinkona kom með mér í bíltúr, við áttum quality stund og það verður að segjast að stundum líður tíminn of hratt. Svona gerir tíminn grín að okkur, ginnir okkur og getur allt eins tekið upp á því að leika á tilfinningarnar og líða jafnvel ögurhægt ef þannig stendur á.
Rósrauð ást
Stundum býður lífið uppá sjálfið í lit, stundum ilmar það af fegursta heim ... allt fer það þó eftir ástandi okkar sem lifum það. Lífið í dag er gott, ég tek því sem gjöf og óska þess að gleðin hjúfri sig áfram í hjarta mínu og búi um sama máta það sem eftir er lifandi daga. Elífð og friður.
Hver man ekki eftir rósrauðum kinnum og Carmen rósum ....
sko, rúllum ...
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:51 | Facebook
Athugasemdir
Ég man...
Hrönn Sigurðardóttir, 10.7.2008 kl. 23:12
Ég man það líka ......
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.7.2008 kl. 23:42
yndislegt, þetta hljómar eins og kisumal, og það er allta svo notalegt.
knús á þig
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.7.2008 kl. 07:42
Ég man tad líka.
Gudrún Hauksdótttir, 11.7.2008 kl. 08:03
Marta B Helgadóttir, 11.7.2008 kl. 10:51
Ég segi nú alltaf að ég sé haldin CRAFT syndrome (Can´t Remember A Fucking Thing)
Dísa Dóra, 11.7.2008 kl. 11:16
Yndisleg færsla og yndislegar myndir.......................
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 11.7.2008 kl. 14:37
Geðveik flott flís langar sko sannarlega að fjárfesta í henni er hægt að láta taka frá þangað til þú kemur á landi næst? hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 11.7.2008 kl. 15:38
Ég man það líka, æðislega flott flís Hafðu það gott.
Kristín Katla Árnadóttir, 11.7.2008 kl. 15:47
Heyrðu ljúfa því miður er einhver bilun hjá mér og ég get ekki sent póst en get tekið við pósti á hotmailinu mínu sem er brynja_har@hotmail.com þú getur sent mér svo get ég svarað þér í tölvunni hjá kallinum mínum eftir helgi því ég kemst ekkert í tölvu um helgina en já myndi vilja að þú tækir hana frá fyrir mig er heilluð sko hlakka til að heyra frá þér
Brynja skordal, 11.7.2008 kl. 17:51
Ég vildi að ég ætti gömlu carmen rúllurnar hennar mömmu. Hafðu það ljúft um helgina mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 11.7.2008 kl. 19:11
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.7.2008 kl. 21:32
HÆjjj Elsku bloggvinkona
Nú var mikið að lesa enda langt síðan að ég kíkti hér inn, ég er öll mýkri eftir lesturinn og fallegur verkin þín.
Ég las hér einhverstaðar að þú ætlir að vera tvo mánuði heima á klaka, "jamm" segi ég nú bara og samgleðst þér helling!
"Carmen" man þær, sat oft heilluð og horfði á mömmu vefja hárinu um heitar "Carmen", enda heyrðist oft "Á!".
Knús inn í helgina
Sporðdrekinn, 11.7.2008 kl. 23:21
Stórt Knús :-)
Lena pena, 12.7.2008 kl. 12:47
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 12.7.2008 kl. 14:31
Ég man sko eftir þeim og á þær en í geymslunni. Hef ekki tímt að henda þeim
.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 12.7.2008 kl. 15:17
Hæjjjjj.Segi eins og Ester ...mig langar í flís í hverri færslu.
Alger krúttkarl hann Enni.....
CRAFT
flott hjá Dísu Dóru.
Knús á þig duglega dúlla
Solla Guðjóns, 13.7.2008 kl. 23:20
Bara að segja þér að mér finnst svo gaman að skoða flísarnar og myndirnar þínar. - Þær eru svo magnaðar.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.7.2008 kl. 00:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.