16.7.2008 | 18:25
Að dúa á fiðruðum væng ....
... að finna hvernig golan dúar þér til og frá, hvernig tilfinningarnar líða eins og ljúfur draumur. Að sætta sig við sorgina, við missinn, við sjálfan þig.
Að dúa í hugsun sem heldur heljartaki í hjarta þitt og þú veist ekki hvernig birtan blasir vid þegar þú opnar augu þín næst!
Þegar rökkva tekur og augun þín leggjast aftur eins og blý. Að fylgja huga sínum í draumaveröld og láta slæðuna falla. Í þessum heimi er gott að búa og líða eins og sandkorn eilífðar milli heima og geima. Að falla í hópinn vera sandkorn á strönd eða að vera dropi í hafi. ..........................
..................................
Að vera!
Í dag keypti ég mér kjól á útimarkaði og hann er bara hrikalega sætur, ég fór og kyssti tengdó sem á afmæli í dag hún er æðisleg og tíminn hefur unnið með okkur og læknað sár!
Englakona
Hvernig getum við búið í betri heimi, hvað getum við gert til að hlúa að þar sem þörf er? Ef ég gæti sent kærleiksfræ í hjarta þitt þá væri það komið til þín núna. Gerum eitthvað gott, gerum það saman! Kærleikur er bestur þegar hann er sýndur í verki, með nærveru, með brosi og hlýjum hug.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Æi elsku Þórdís mín hvað þetta er fallegt ég fékk tár í augun við að lesa þetta, þetta er svo mikið satt, þú er yndisleg og góð.
Til hamingju með tengdó þína hún hlýtur að vera stolt af þér það er ekki hagt annað. Þú er algjör engill.


Kristín Katla Árnadóttir, 16.7.2008 kl. 19:22
Til hamingju með tengdó
Margrét M, 17.7.2008 kl. 09:01
Held þú sért að setja kærleiksfræ í öll þau hjörtu sem lesa þessa færslu þína !
Því hugurinn er svo máttugur..... Til hamingju með nýja kjólinn og kveðja til tengdó!
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 17.7.2008 kl. 09:14
Hrönn Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 09:57
Mér hlýnaði um hjartarætur við að lesa þessa fallegu færslu, Zordís mín. Þakka þér fyrir kærleiksorðin þín sem örugglega festa rætur í mörgum hjörtum.
Knús til þín og kveðja til tengdó og til hamingju með nýja kjólinn.
Svava frá Strandbergi , 17.7.2008 kl. 11:34
Falleg kveðja sem gladdi mitt hjarta.
Flísin glæsileg.
Vatnsberi Margrét, 17.7.2008 kl. 13:53
Svei mér þá ef að þetta er ekki eins sú fallegasta flís sem að ég hef séð!! Hún er svo mjúk og blíð, rétt eins og listakonan.
Þú segir: Ef ég gæti sent kærleiksfræ í hjarta þitt þá væri það komið til þín núna.
Elsku Zordis mín þú virðist ekki gera þér grein fyrir kærleiksfræjunum sem að þú dreifir á meðal okkar sem lesum bloggið þitt. Þú hefur oftar ein einu sinni og oftar en tvisvar fyllt hjartað mitt af kærleiksfræjum með athugasemdum þínum á bloggi mínu sem og skrifum þínum á þínu.
Ég vill hér með þakka þér fyrir öll þessi fræ. Og ef ég mögulega get með hugar afli og góðum hugsunum sent þér slíkt fræ til baka þá geri ég það hér með
Sporðdrekinn, 17.7.2008 kl. 18:41
Fræin frá þér eru farin að blómstra víða, það veit ég. Yndisleg flís. Njóttu sumarsins í fína kjólnum.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 23:07
Þú ert yndisleg elsku Zordís og "verkin" þín frábær ..... en á hverju ertu?? Get ég fengið smá skammt??????
Auður (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 00:22
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.7.2008 kl. 00:45
Til hamingju með "tengdu" fagra mær.
Heiða Þórðar, 18.7.2008 kl. 01:08
Sporðdrekinn, 18.7.2008 kl. 02:33
Knúsaðu tengdó frá mér með eftiráafmælisóskum

Hlakka til að sjá þig enn á ný í nýjum kjól
Flísin er æði!
zoti (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 10:02
þá segi ég bara
kærleikur til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.7.2008 kl. 17:44
Rauður kjóll !!!! hottý-kella
Annars hugljúf færsla og nú tel ég niður ....4..
Solla Guðjóns, 19.7.2008 kl. 00:18
Sæl elsku Þórdís mín getur þú sent mér eimill þitt svo ég geti svarað þér. Knús
katla (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 12:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.