21.7.2008 | 10:34
Í lausu lofti á Vesturgötunni ....
.... eilífar draumfarir sem skapa líkamanum sérstöðu. Þar sem efnið svífur endalaust áfram og blandast tilfinningum raunheima.
Ég bjó beint á móti Silla og Valda versluninni á Vesturgötunni þegar ég var yngri og minni. "Af ávöxtum skuluð þið þekkja þá" (held að slagorðið þeirra hafi verið svona!) Denni kaupmaður var í sömu línu en hann keyrði um á bronco bíl. Í bakhúsi bjó Sigga sæta söngkona og Tryggvi hafnarvörður gekk hnarrreistur í átt að höfninni eftir að hádegismat lauk. Hann bjó reyndar á Nýlendugötunni.
Að svífa í draumi er stórkostleg tilfinning og geta stjórnað svifinu, hægt á sér og hraðað för í huganum einum. Stundum væri gott að geta nýtt sér þessa undursamlegu efnistækni í lifanda lífi.
Ég ætla að finna prakkarann í mér og klára nokkur viðvik.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Njóttu lífsins prakkarinn minn
Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 10:53
Held þú þurfir ekki að kafa djúpt eftir prakkaranum, hafðu það gott og njóttu
Didda, 21.7.2008 kl. 11:34
Þetta var undarlegt - ég var einmitt að hugsa um þennan frasa........ "Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá"
Eigðu góðan dag
Hrönn Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 11:41
Margrét M, 21.7.2008 kl. 13:11
Þú hefur átt heima rétt hjá mér nú er ég hissa.
Eigðu góðan dag Þórdís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 21.7.2008 kl. 13:24
- haltu áfram að pakka, kellingin mín....!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.7.2008 kl. 22:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.