21.7.2008 | 22:18
Á bak við silkimjukan blæ bifukollunnar ....
..... í hnipri og klórar sér í nefinu.
Bifukollur eru kitlublóm, mjúk, falleg og svo eru þau líka svona óskablóm.
Ég er búin að vera í svona neutro ástandi .... var dugleg í dag að skipuleggja ýmislegt í tengslum við starfið mitt og hef beðið svara með svo margt sem þarf að fara í gang fyrir fríið.
Tíminn vinnur stundum á móti konum en oftast vinnur hann með og veitir dýrindis gjafir inní tilveruna. Tíminn talar stundum til konu og hvíslar orðum í eyrað sem eru margsinnis svo rétt og sönn. Tíminn líður eins og vatnið, eins og golan sem kyssir þína kinn. Tíminn ert þú í eigin hjarta.
Ég er í pökkunarham núna. Er búin að grafa upp vetrargallana mína og ætti að vera fær í flestan sjó og talandi um hafið þá hlakka ég mest til Englavíkurferðar og Atlantshafsvaðs, ég óska þess heitt og vona að fara þangað ekki ein heldur með góðum konum. Fara í svona Pick Nick með nesti og nýja skó. Kaupa svo kaffi hjá Sigfríði sem er með kaffihús í Selvoginum. Kasta sér á kirkjutröppurnar og drekka í sig náttúruna.
Orðin mín ætla ég að setja í lítinn kassa og sussa inn í kvöldið. Ég næ kanski einni línu af litríku ljóði þegar líður á nóttina. Svo svíf ég á bifukollufræji í heim drauma og dásemda.
Góða nótt
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Dásemdarfærsla að vanda góða nótt og góða drauma
Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 22:37
Góða nótt Þórdís
Huld S. Ringsted, 21.7.2008 kl. 23:34
Sporðdrekinn, 22.7.2008 kl. 01:12
Fékk gæsahúð, þetta er svo fallega skrifað hjá þér.....og vekur mig til umhugsunar
Didda, 22.7.2008 kl. 10:53
Góðan dag fallega skrifað að venju hjá þér ljúfust.
Kristín Katla Árnadóttir, 22.7.2008 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.