Bara finn það ...

... þreytan í bakinu klifrar uppá axlir.  Og það veit Guð að axlirnar mínar eru nógu breiðar fyrir allar syndir heimsins.

Mínar, vill bara taka það fram að ég ætla ekki að súta herðubreið fram og til baka vegna synda fyrrum heimsins meistara og geðsjúklinga.

Annars tók ég Biblíuna á loft í gær.  Kærir vinir mínir gáfu mér þessa ágætu bók í brúðargjöf og er hún hið mesta stáss í stofunni okkar.  Ég fletti af tilviljun upp hinum ýmsu "spjöllum" og staldraði við 5 heimskar og 5 hyggnar meyjar. 

Það er nefnilega þannig að samsýning bloggkvenna; Katrínar Snæhólm Baldursdóttur, Guðnýjar Svövu Strandberg, Elínar "björkin" Guðbrandsdóttur, Katrínar Níelsdóttur og Zordísarinnar fer að skella á.  Sýningin hefst 29 Ágúst og stendur til 14 September!

Hyggnar konur halda á völl,

hvað skal nú gera?

Velja nafn og prýða höll,

Ráðhús Reykjavíkur bera.

Mála meyjar hjartans köll,

hver í sínu horni.

Gegnsæji um víðan völl,

þora, koma og vera.

Ég geri ekki ráð fyrir miklu bloggerýi á næstu vikum en ég hlakka til að sjá ykkur sem flest og endilega sendið mér símanúmerin ykkar á femailið mitt zordis@zordis.com ef þið viljið ná í mig.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sama hér, verð lítið á ferðinni og þó,  hlakka til að koma á sýninguna, þá verð ég örugglega orðin uppréttari.  Hafðu það gott og gangi allt vel já þér og þínum.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 20:57

2 identicon

Hlakka til að koma á sýninguna ykkar..

Góða ferð til Íslands, mín kæra.

Srósin (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 21:36

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Elskan mín ég hef samband við þig meilinu þínu, knús

Kristín Katla Árnadóttir, 22.7.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ertu hætt að svara mér.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.7.2008 kl. 22:20

5 Smámynd: Elín Björk

Gangi þér vel að pakka mín kærust, hlakka til að sjá þig sæta og ferska hér á klakanum eftir smá.... Kínverjarnir okkar geta grallað eitthvað saman og svona

Knús á þig, sæta drauma 

Elín Björk, 22.7.2008 kl. 23:28

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Góða ferð og góðar stundir á landinu okkar yndislega

Sporðdrekinn, 22.7.2008 kl. 23:29

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Haf og himinn skilja að

konur listagyðjur

Get þó sagt með sanni það

að þær þora að vera

Hrönn Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 23:36

8 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Hafðu það sem allra best.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 23.7.2008 kl. 00:20

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæjjjjjjjjjjj nú ertu kannski bara að vakna til að fara út á flugvöll......

hlakka til að sjá þig ´dífa táslunum í Atlandshafið í Englavík svo hitum við þær upp í geðveika pottininum ásamt fleiri táslum og verðum heitar og feitar

Solla Guðjóns, 23.7.2008 kl. 01:31

10 identicon

Hafðu það sem allra best elsku sæta dúlla, og gangi þér vel með samsýninguna.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 08:53

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

gangi ykkur best Spánarmey

knús

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.7.2008 kl. 09:41

12 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Gangi ykkur meyjunum vel með sýninguna!  Stefni á að komast...........

kveðja frá Vestfjörðunum

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 23.7.2008 kl. 11:37

13 Smámynd: Margrét M

góða ferð og hafðu það gott á Ísalandinu

Margrét M, 23.7.2008 kl. 13:11

14 Smámynd: Lena pena

Gangi ykkur vel..ég ætla að mæta á sýninguna :-)

Lena pena, 23.7.2008 kl. 19:55

15 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hlakka til að hitta ykkur og skoða listafurðir bloggkvenna. Góða ferð heim, elskuleg.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 23.7.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband