Glampandi sól og sæla ...

 .... Það er nú meiri dýrðin þetta íslenska sumarveður.

Vetrarfötin mín hafa að engu gagni komið og íslenska lopaflísin er afundin og afbrýðissöm.

Laugarvegurinn var arkaður upp að hnjám, fram og til baka!  Við sáum mótórhjólakappa sem við þekktum, Braga Ólafs, Eyþór Arnalds og nokkra fleirí sem ég ekki þekki nöfnin.  Vesturgatan var mynduð í bak og fyrir og litið inn um glugga á Nornakaffi.

Í dag hitti ég Guðný Svövu Strandberg, Elínu Björk og Katrínu Níels í Ráðuhúsi Reykjavíkur.  Sólin geyslaði allhrikalega þannig að ég gjörsamlega blindaðist af tilverunni og sá ekki mætar konur sem biðu okkar Elínar.  Yndislega gaman að hitta þessar konur enda mikil löngun eftir margar bloggfærslur.

Þetta verður hreint yndislegt hjá okkur og mikið fjör þegar við opinberum okkur.  Nánari tímasetning

kemur síðar og þú ert hjartanlega velkomin að samfagna okkur á opnun sýningarinnar "Gegnsæji" ..

Hlýja 20 cm

Hlýja Arkýl á flís

Úr glampandi sól og sælu þá sendi ég ykkur fingurkoss úr höfn Þorláks eða ðe City eins og margir kalla það.  Ég er hins vegar með það á hreinu að hér standi ég í nafla alheims.  Hvorki meira né minna .................................................... Alveg satt!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Dóra

Já veðrið er svo sannarlega gott þessa dagana - yndislegt bara

Dísa Dóra, 26.7.2008 kl. 21:15

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

gangi ykkur yndislega !!!

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.7.2008 kl. 21:28

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er svo langt síðan að það hefur verið svona gott veður á fróni, Ég hlakka til að heyra frá þér, og ég ætla að reyna að koma á sýninguna  hjá þér og ykkur. Knús elskulega Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.7.2008 kl. 21:44

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 27.7.2008 kl. 01:27

5 identicon

Ja, svei mér þá ... nafli alheimsins í Þorlákshöfn. Who would have thought?

Ég á lítinn sætan loðinn nafla. 

Sendi þér loðnar knús kveðjur úr norðrinu sæla og hlýja!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 14:22

6 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 27.7.2008 kl. 15:46

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Hvenær er sýningin og hvað verður hún lengi?? Væri nú gaman að skjótast suður og kíkja á ykkur

Huld S. Ringsted, 27.7.2008 kl. 21:25

8 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Gaman, gaman, nú gleðjast gumar og sprund.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.7.2008 kl. 21:37

9 Smámynd: Sigrún

Elska þig sæta spæta
Nafli alheimsins er cityið það er alveg á tæru ég stend föst á því svona rétt einsog þú
Hlakkatil að fá að sjá ykkur
knús í klessu !

Sigrún, 27.7.2008 kl. 22:45

10 identicon

Ég ætla sko að mæta á samsýninguna ykkar.  Svo væri nú eðal að komast í ÐE CITY um næstu helgi og sjá sýninguna þína þar.  Verður eflaust margt sniðugt að skoða þá.

Vonandi sjáumst við.

Srósin (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 23:08

11 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Frábært sumar.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 27.7.2008 kl. 23:17

12 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Heppin ad fá svona gott vedur á landinu góda....

Gangi tér vel med sýninguna og vonadni verdur úr minni reisu til íslands tá get ég komid og borid allar tínar fallegu myndir augum...

Eitt svakalega stórt knús á tig ,seldu svo vel og vandlega

Gudrún Hauksdótttir, 28.7.2008 kl. 05:49

13 Smámynd: Margrét M

Margrét M, 28.7.2008 kl. 12:27

14 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Innlitskvitt

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 29.7.2008 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband