Guðir og gæfir menn ...

.... það má segja að við séum gæf þessa dagana og njótum veðráttunnar.

Ég hafði látið mig hlakka til að fá goluna í andlitið, láta rigna upp undir pilsfaldinn og ganga um í lopapeysunni minni.  Ekki halda að ég sé ósátt, ó nei!!!

það er með ólíkindum frábært veður og höfum við notið þess á okkar hátt þ.e.a.s. þar sem skugginn fellur við sól.

Það var sagt við mig "og þú sem býrð á Spáni og ekki brúnni" ... Nákvæmlega, ég fer aldrei í sólina, sit ávallt í skugganum því sólin getur verið alsherjar "morðingi"

Við mæðgur erum að fara niður á Grensás að heimsækja vinkonu og frænku, svo verður haldið í Ellingsen og eitthvað þurfum við að kaupa af blómum þar sem frænka fær blóm og svo á föðursystir mín afmæli í dag. 

Í dag fara nafnspjöldin mín í prentun og það verður gaman að sjá útkomuna.  Ég get hins vegar ekki ákveðið mig hvaða tillögu ég á að nota svo kanski ég verði með nokkrar bara LoL

Ætla að fá mér kaffi og drífa mig út í sumarið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þórdís mín þú hefur komið með Spánar veðrið til Íslands, bíddu bara það kemur rigning og rok.    Hafðu það gott í dag

Kristín Katla Árnadóttir, 31.7.2008 kl. 11:34

2 Smámynd: Margrét M

góðar stundir

Margrét M, 31.7.2008 kl. 14:07

3 Smámynd: Lena pena

Gaman hjá þér mín kæra :-) knús

Lena pena, 31.7.2008 kl. 17:00

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 31.7.2008 kl. 21:58

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 31.7.2008 kl. 22:38

6 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Hafðu það gott á landinu okkar ljufan

Kærleikskveðjur

Kristín Gunnarsdóttir, 1.8.2008 kl. 08:22

7 Smámynd: Brynja skordal

hafðu ljúfa helgi elskuleg

Brynja skordal, 1.8.2008 kl. 08:29

8 Smámynd: Lena pena

Sæl yndislega kona :-)

Hvenær og hvar verður sýningin? Ég ætla ekki að missa af þér aftur.

knús

Lena pena, 1.8.2008 kl. 09:59

9 Smámynd: Didda

Njóttu helgarinnar

Didda, 1.8.2008 kl. 11:55

10 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Góða helgi :)

Vatnsberi Margrét, 1.8.2008 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband