Góðar viðtökur og gleði ...

á Ungmennahátíðinni í Þorlákshöfn 2008.

Hátíðin mun verða haldin á Grundarfirði að ári og er það hið besta mál.

Ég fagna því að hafa hitt bloggvinkonur og er það í senn skrítið þar sem þú veist dálítið um viðkomandi án þess að hafa nokkurn tíma hitt manneskjuna. 

Ég hitti bekkjarfélaga og gamla félaga sem var frábært og sakna ég þess að hafa ekki meiri samskipti en þegar 10 ár líða eins blikkað sé auga þá gerir kona sér litla grein fyrr en akkúrat núna hvernig tíminn flýgur, við yngjumst víst lítið svo það er mikilvægt að halda í prakkarann sem hvílir í hjartanu.

Sýningin gekk vonum framar og er ég alsæl með góðar móttökur, þakka þér fyrir komuna því það komu allnokkrir sem blogga, sem lesa blogg og allir hinir!

Morgunleikur

Morgunleikur

Akrýlflísin Morgunleikur rataði sína leið og er ég alsæl með það.

Takk fyrir komuna þið sem sáuð ykkur fært.  Sýningin stendur út ágúst mánuð og er hægt að skoða sýninguna á opnunartíma Bókasafnsins.

Í dag kom tækifærið

ég greip það

ég horfði á það um stund

og faðmaði það

Nýr dagur framundan

og ný ævintýri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til lukku með daginn, hefur verið yndislegur hjá ykkur.  Gaman að margir bloggvinir gátu litið inn.  Hafðu það gott Zordis mín og njóttu dvalarinnar hér heima.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.8.2008 kl. 22:13

2 Smámynd: Dísa Dóra

Ekki hissa á að morgunleikurinn hafi ratað sína leið - rosalega falleg flís

Dísa Dóra, 3.8.2008 kl. 22:27

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég ætla að koma á morgun! Verður þú þar?

Hrönn Sigurðardóttir, 3.8.2008 kl. 23:26

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Til hamingju með daginn, og sýninguna þína. - Ég vona að mér takist að koma og sjá, allavega stefni ég að því. -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 4.8.2008 kl. 00:15

5 identicon

Þetta er alveg æðisleg sýning hjá þér. Og það var meiriháttar gaman að hitta þig í dag

Bryndís R (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 00:47

6 Smámynd: Solla Guðjóns

hæjjjj.Gaman að hitta þig áðan og í dag

Solla Guðjóns, 4.8.2008 kl. 01:30

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Frábært að vel gengur. Ég væri nú alveg til í að koma og kíkja á þig og flísarnar þínar, en það bíður bara betri tíma.

Sporðdrekinn, 4.8.2008 kl. 17:55

8 Smámynd: Elín Björk

Takk fyrir daginn svítí, gaman að sjá ykkur
Og hvað, er annar hittingur framundan?
Knúsí smúsí

Elín Björk, 4.8.2008 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband