080908 .... 040169 ..... 121165

1.2.3.4.5 DIMMALIMM ... Tölur í bók eða jakka og kanski frakka!

Ég var næstum því búin að giftast konu í gær!!!  Og, get sagt ykkur að það var ekki hvaða kona sem er.  Má ekki upplýsa ykkur um hver hún er en ef ég hef skilið málið rétt þá gerði hún ungmeyjarheit um að gifta sig á þessum blessaða degi sem gærdagurinn var.

Lagt var á ráðin og leitað var að karlfangi fyrir hana en ekkert gekk og við gengum nánast í það heilaga ef ekki hefði verið fyrir þá sök að ég ER gift og gekk að eiga Fjall frá Iberíuskaga. Tvíkvæni er ekki löglegt hvorki í hans kaþólska trú-umhverfi né í þeirri villimannatrú sem ég aðhyllist.  Ekki það að kosturinn við að eiga 2 maka eru greinilega mun fleiri en gallarnir (förum ekki nánar út í það) ....

Ásdís og Lilja spurðu mig í síðustu færslu um stærð myndarinnar "Stúlka við fjallsrætur" en ég man ekki stærðina (gæti verið ca. 22 x 37), heimasíðan mín www.zordis.com er svo óþjál í fartölvunni minni að ég kemst ekki inn til að sjá stærðina OG það hefur EKKI verið gert SNITTI á síðunni síðan í febrúar fyrir einu og hálfu ári síðan.  (fari það í geltandi)  Ég þarf annað hvort að fá mér nýja síðu eða fá manneskju sem kann á þetta........blablabla

Af öðrum heimi.

Af öðrum heimi (mynd í einkaeigu)

Birti hér mynd af fólki með opin augun.  Ég hef verið spurð að því af hverju ég máli fólk með lokuð augu og bara með eitt ....?  Já, spurning!

Að vera dreymin og gleymin að sjá heimin í því ljósi er skín þér innra.  Eins og dropi í daggarhafi ræ ég minni duggu og fagna nýjum degi. 

Ekki varð úr brúðkaupi enda harðgift kjéddling!!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

 Ég lagði mitt af mörkum til að ná að gifta umrædda yngismey......Humm maðurinn heldur áreiðanlega að ÉG hafi haft einhverjar hvatir til hans en hvað gerir maður ekki fyrir vini sína

Takk fyrir kíkið í gær

Solla Guðjóns, 9.8.2008 kl. 10:50

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 9.8.2008 kl. 13:54

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk fyrir síðast fallegust!

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 15:06

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

HEY þú mín fagra marggifta kona...það er hittingur á morgun..kíktu á e mailið þitt því það er einhver skandallinn þar sem veldur að ég get ekki sent núna skilaboð en þau eru ar þó einhver síðan í gær.

 knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.8.2008 kl. 16:25

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

17.06.95 ekkert spes við þetta í tölum en þennan dag gifti ég mig í annað sinn, þegar ég giftist fyrri manni mínum (látinn) þá var það 17.12.77, allavega 17 það sama en ekkert annað, nema báðir eru frábærir menn.  Hlakka mikið til 29, er farin að telja niður í huganum, það verður fyrsta bæjarferðin eftir skurð.  Hafðu það gott darling. kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband