12.8.2008 | 10:31
Suðurlandsundirlendið og þess fögru meyjar ....
....
Að hoppa og skoppa, taka á rás og finna sumarfrísstemminguna! Að tilla sér í tryllitækið og láta vindinn leika um ljósa lokkana (er með rúðuna niðri, EKKI blæjukaggi) ....
Stefnan er tekin á Sólheima og kaffisötur ..... Þorlákshöfn, StokksEyrarbakki og Selfoss (ekki í þessari röð endilega) ....
Á Suðurlandi býr hópur af fögrum meyjum sem ég ætla að sýna Fjallinu mínu, þar eru líka álfasteinar og hallir og fegurstu Fjöll. Strákarnir eru alls ekki slæmir neitt en ég ætla ekki að sýna mínum heittelskaða gamla kærasta né neitt þannig sko!
*******
Sumarveðrið er hreint yndislegt og sjóndeildarhringurinn faðmar með sínum breiða faðmi. Útsýnið er úrvalskostur og fegurð náttúru hreinn og beinn unaður.
Kjéddlingin er slæm í hnakkanum, svo sem ekki algengur kvilli hjá konu á miðjum aldri en jú þessi kona sem um ræðir er oft slæm í hnakkanum en það er af sökum höfuðhangs og hoks með pensil.
Lítil Leyndarmál er akrýlmynd 60 x 80. Hér er brot fyrir ykkur sem viljið gægjast!
SAMSÝNING okkar bloggkvenna er á LAUGARDEGINUM 30.ÁGÚST. Ég hlakka til að hitta ykkur sem flest en sýningin stendur til 14.September. Þér er boðið að fagna sýningunni með okkur laugardaginn 30.Ágúst milli klukkan 15.00 OG 17.00 ......
Ooooog svo er það bara boogie woogie út alla vikuna en fyrst er það Suðurlandið undurfagra!
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:35 | Facebook
Athugasemdir
Hlakka til að sjá þig
Ég verð með leynigest 
Hrönn Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 10:37
Solla Guðjóns, 12.8.2008 kl. 11:21
Lítil leyndarmál er æðisleg!!!
30. ágúst verð ég viðstaddur opnun á sýningu hér í Amtsbókasafninu sem heitir Faces of the North og kemur að utan. Viðamikil sýning og ég vant við látinn - verð með þér í svo sterkum anda þarna!!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:38
Þórdís mín ég skal verða þarna en engin má sjá mig ég pikka í þig til að láta þig vita.. Knús inn í daginn.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.8.2008 kl. 11:54
Æðisleg mynd!!
Ég tek stefnuna á Ráðhúsið á sýninguna ykkar.. eða er ekki öruggt að hún verði þar?
Á ekki svo að skella sér á dansleik í City-inu nk. laugardagskveld... Sálin og flottheit... Fjallið þitt verður nú að prufa íslenska ballstemmingu :)
Srósin (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 12:15
Ég mæti.
Ásdís Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 14:22
Jeg kommer på lördag ....
Skemmtu þér vel í faðmi fjalla .....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.8.2008 kl. 15:20
gangi ykkur æðislega !!!
kærleikur til þín og allra
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 15:30
Heff fönn í Þorlákshöfn-city og alls staðar sem þú stígur fæti krúttan mín! Heyri í þér á eftir... þarf að eiga við þig eitt eða 2 orð
Elín Björk, 12.8.2008 kl. 20:26
Myndirnar þínar eru yndislegar.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 12.8.2008 kl. 23:02
Rosalega gaman að hitta þig í dag þó í mýflugumynd væri. Hittumst vonandi betur áður en þú ferð af klakanum góða
Dísa Dóra, 12.8.2008 kl. 23:10
Takk fyrir daginn ljúfust! Á leiðinni heim mundi ég eftir nokkrum frösum á spænsku sem ég hefði getað slegið um mig og fjallið í dag! Nota þá bara næst
Og myndin er helt FANTASTICK! Ég er hamingjan uppmáluð
Hrönn Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 23:17
Ég mæti
Marta B Helgadóttir, 14.8.2008 kl. 23:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.