Hasta la Pasta ....

... voru orð mesta lygahlaupara Suðurlandsundirlendis klukkan 18 hundurð nú seinnipartinn í dag.

Ramon fjölskyldan hélt á Heiðina í glampandi eftirmiðdagssól og naut fegurðarinnar sem flaut að Ingjólfsfjallinu.  Merkilegt hvað allt er fallegt í léttu sólskini.  Á leiðinni í höfðuborgina var sungið og trallað, aðallega trallað og bílstjórinn ók einbeitt.  Þegar Öndvegissúlurnar voru í sýn minninganna ákvað kjéddlingin að taka smá aukarúnt heim og beygði við Hafravatnsafleggjarann.

Þegar hér var komið höfðu börnin gengið í hlíðinni og notið sólarglætu Selfyssinga, drepið á dyrum í höfn Þorláks og verið í skrúfubardaga á verönd Krúsarinnar.  Framundan var bikinítæm, hersögur a la afi og Eyri, litli hafsjór minninganna þar sem tíminn stóð í stað og ungfrúin gerði bombur í ísköldu vatninu og lék sér með sviðakjammana!

"MYNDIR SEINNA ..... ÞVÍ VÉLIN ER BATTERÍSLAUS"

Það var ákveðið að koma aftur að Hafravatni því við nutum okkar þar!

Heart

Suðurland var fallegt með öllum sínum fögru meyjum.  Stefnan var tekin á Kaffi Krús á Selfossi til að hitta skemmtilegar konur sem sumar hverjar brögðuðu á vænum Hnallþórum .... Ásdís Sig, Hrönn, Ollasak og Dísa Dóra sem og Leynigesturinn Fanney og Tína .... Takk fyrir skemmtilega stund Heart

Já, friðarnærurnar litu dagsins ljós, ógurlega sexý og vandaðar!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Vildi að ég hefði verið með ykkur á Krús. Ekki var félagsskapurinn fátæklegur, andlega og félagslega séð.Þær sem ég þekki eru Fanney og Ásdís. Báðar frábærar. Þekki Fanneyju eftir að hafa unnið með henni og það segir þér kannski eitthvað, að hún er uppáhaldsiðjuþjálfinn minn ásamt Annettu nokkurri, sem er seinfær bloggari, en ágæt samt. Þær tvær gera allt að töfrum og skemmtilegheitum. Svo myndi ég trúa að ekki væri leiðinlegt að hitta hinar. Next time, Zordís!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.8.2008 kl. 01:53

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta var góður tími

Hrönn Sigurðardóttir, 13.8.2008 kl. 08:42

3 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Takk fyrir síðast..... skemmtilegt með eindæmum að hitta svo flottar og hressar konur....Je minn... það var svo gaman að vera leynigestur...

Fanney Björg Karlsdóttir, 13.8.2008 kl. 10:11

4 Smámynd: Tína

Blessuð frábæra kona. Ég þakka kærlega fyrir mig, en mikið svakalega var nú gaman að koma þarna og hitta ykkur. Er sko alveg til í að gera þetta oftar, því allar voru þið nú skemmtilegar með eindæmum.

Knús á þig yndislegust og takk fyrir bloggvináttu sem og aðra vináttu  

Tína, 13.8.2008 kl. 10:19

5 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Það hefur bara verið yndisleg stund hjá ykkur, mikið hefði ég viljað vera með og svo hefði ´´eg ekki haft á móti því að sjá málverkin þín augliti til auglitis.

Knus

Kristín Gunnarsdóttir, 13.8.2008 kl. 15:18

6 Smámynd: Didda

Hasta la vista baby....

Didda, 14.8.2008 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband