15.8.2008 | 00:14
Á hól í stuttum kjól ....
... Mamma, mamma, átt þú þennan kjól?
Íris Hadda sá kjól sem móðir hennar hefur aldrei farið í og var ánægð með þá gömlu. Nýmóðins kjóll á kjéddlinguna. Ég verð fín þegar ég fer í kjólinn en þetta rifjaði upp gamla kjóla sem móðir vinkonu minnar átti og lánaði mér, við erum að tala um BIG TIME heimasaumaða kjóla með kúl brjóstasaumum, skósíða með karakter!
Rólegur og dásamlegur dagur .... sofið út og "eldað" kaffi. Það drukkið og stefnan tekin á Örninn í Skeifunni að ná í reiðhjólin okkar. Hellidemba = ekki hjólaveður. Mín með nýstraujað hár sem var flöffý og reglulega lifandi rigningin er bara dásamleg!
Við fengum bílinn hans pabba lánaðann og keyptum hjólagrind f.kúlu og græjuðum málið. Börnin fóru út að hjóla og ég skrapp í heimsókn til Rúrý vinkonu, hún er yndisleg og sterk!
Horft til himins ....
Hafravatn í allri sinni dýrð
Dótlan mín
Dúllinn minn
Það var sko líf og fjör hjá okkur þegar við tókum stöðuna á Hafravatni. Sú gamla lét sig hafa það og fór líka útí OG HÁflóð minningana óð konu að mitti.
Við erum nýskriðin heim eftir hlýtt og notalegt heimboð hjá Albert vini, mikið skrafað og spekulerað.
Góða nótt í alla nótt .....
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Mamma mín talaði alltaf um MÓÐINS þetta og hitt. Það er sjarmerandi að hugsa til þess.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 15.8.2008 kl. 01:43
Flottar myndir Hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 15.8.2008 kl. 11:06
Seppi, seppi situr á hól og segist vera hundur, hann á bæði buxur og kjól og börnunum þykir hann undur.
Skemmtilegir tímar hjá fjölskyldunni, æðislegt. Njótð helgarinnar
Ásdís Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 19:06
knús í klessu eða messu veist að ég á heima við hliðina á kirkju og stutt að tæta í messu :P
Sigrún, 15.8.2008 kl. 19:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.