19.8.2008 | 22:11
Að gefa mynd nafn ...
.... Gróu Sögur er nýjasta myndin mín sem ég vinn nú að ... nafnið verður kanski ekki endilega vinnuheiti myndarinnar en þegar hún hefur hlotið lokastrokuna þá kemur nafnið skýrt!
Sýningin mín í Gallerý Undir Stiganum lýkur á morgun og mun ég taka hana niður og hafa samband við ykkur sem keyptuð myndir (sum ykkar hafið fengið ykkar flísar og myndir) en það verður nóg að gera hjá mér á morgun því ég mun síðar halda í heimahús og fá ægifagrar neglur til að verða fínni fyrir menningarnótt sem og laugardaginn okkar 3o.Ágúst.
Ég fékk smá verkefni í dag sem ég þarf að leysa fyrir klukkan 10 á fimmtudag og verður það gert í gleði. Mér var falið að útbúa tækifærisgjafir sem þurfa að fara í skreytingu svo það er víst betra að fara að skyrpa í lófana. Ég sé til hvort það verður ræs and sjæn klukkan 0600 í fyrramálið til að fylgjast með leik Ísland - Pólland (ógó freistandi) ....
Fór í risaeðlugallann og fékk unaðslega heilun, bowen gælur og höfuðnudd, enn sem komið er finn ég ekki til og er fersk og falleg!
Talandi um nöfn á myndir þá man ég að dóttir mín Íris Hadda valdi sitt nafn sjálf .... það kom í tæru hvísli þegar við mæðgur keyrðum yfir Þrengslin í snjóbil og stormi. Litla dúkkan lá í barnabílstólnum og valdi Írisarnafnið en Höddu nafnið var ekki hnikað.
Nöfnin, Dröfn, Dóra, Björg, Guðný, Elísabet og Kolka voru ofarlega á listanum og mikið hlær Írisin mín að nafninu Kolka ( mér finst það afskaplega skemmtilegt nafn) ... En, sálarhvíslið vann og nafnið hennar fer henni afskaplega vel.
Áfram Ísland!
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:34 | Facebook
Athugasemdir
"Gróu sögur" ertu farinn að finna fyrir Íslenska andanum *talaillaumogbúatilsögurumalltogalla*
Æ það er kannski ljót af mér að segja þetta, en ég fékk stundum alveg upp í kok af sögunum sem að ég heyrði bæði af sjálfum mér og öðrum.
Þetta er æðisleg mynd af sálarhvíslaranum þínum.
Sporðdrekinn, 19.8.2008 kl. 22:55
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.8.2008 kl. 23:13
Fallegt nafn á enn fallegra telpukorn
Hrönn Sigurðardóttir, 19.8.2008 kl. 23:38
Góða nótt Zordis mín, þú ert yndisleg.
Ásdís Sigurðardóttir, 20.8.2008 kl. 01:45
Sit hér og horfi á leikinn, gengur vel ... les þig og líður vel.
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 06:34
Ég er vöknuð......... en þú???? Sit hérna máluð fánalitunum í framan, með lúður í annarri og dúsk í hinni. Bara spennandi leikur í gangi sko.
Knús inn í daginn þinn elskulegust og gangi þér vel með tækifærisgjafirnar.
Tína, 20.8.2008 kl. 06:38
Ég er að fara bloggrúntinn eftir að hafa horft á þennann frábæra leik!
Áfram Ísland!
Knús á þig
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 20.8.2008 kl. 09:40
Hlakka til að koma á sýninguna í haust :)
Vatnsberi Margrét, 20.8.2008 kl. 12:10
Framkvæmdagleðiknús!!
Elín (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 14:22
Brynja skordal, 20.8.2008 kl. 15:49
Ég eiginlega hlæ með Írisi....
Heiða Þórðar, 20.8.2008 kl. 17:00
Lovjútú
Elín (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 23:38
Þú er alltaf dásamleg Þórdís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 21.8.2008 kl. 11:41
Tad er bara alltaf svo mikil gledigjafaumburdarlindisálaheill í skrifum tínum .Gangi tér allt í haginn á íslandi.
Gudrún Hauksdótttir, 21.8.2008 kl. 11:54
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 15:07
Lena pena, 22.8.2008 kl. 08:56
Íris Hadda er eins fallleg á myndinni og nafnið hennar......
Eenn eehhhh málaðar gróusögur.......forvitnilegt......bara heyrt þær hingað til en sjaldan horft á þær
Solla Guðjóns, 23.8.2008 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.