22.8.2008 | 16:21
Kjéddlingarpartý á Gili ....
Í kvöld er mér boðið í frúarteiti hjá Frú Gilitrutt ... æj hún er nú svo mikið krútt og verður fugladansinn eflaust tekinn og mun hefðarfrúin sveipa sér í sitt helgar átfitt sem er fallegasta lundalopapeysa sem ég hef séð.
Allavega þá er hér 50% hamingja á heimilinu þar sem að íslenski hlutinn í barninu mínu vann stórsigur á Spánverjum og það grætur hinn helmingurinn .... Nehhhh bara grín!
Mærin mjóa skrapp í miðbæinn og lét verða af því að hitta Biddu krútt og áttum við stórkostlega stund saman. Reyndar voru þær nokkrar og fyrir mína parta þá naut ég tímans .... Bidda þú mætir bara með hvítu peysuna þegar við tökum miðnætursnörlið.
Kanski ég skreppi til Birnu og kaupi gallann sem ég sá og færi þér þann hvíta fyrir næsta hitting.
Hall ó ó hallí hey, það er komin helgi þó ekki Helgi Seljan sá knái og frái fréttamaður. Ég fann að litla hornið sem býr í mér er orðið að svona lukkuskeifu sem bullar í gleði og gæfa ...
Best að senda Gilitrutt vinkonu minni línu en ég var að enda við að hrella hana og best að leiðrétta bullið í mér ....
Drengurinn að falla í trans í Smáranum
(hann elskar þessa mynd sést bara í hvítuna í augunum hans)
Sæta Haddan mín
Í kvöld er hornalaust kvöld og við skulum vona að spádómsgáfurnar skilji ekki við konu á svona kvöldi.
Góða og Óða helgi.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:41 | Facebook
Athugasemdir
Yndislega falleg börnin þín elskan.
Og skemmtu þér vel í boðinu hjá frú Gilitrutt
við sjáumst.
Kristín Katla Árnadóttir, 22.8.2008 kl. 16:48
Falleg börnin þín....Haddan doldið lík mömmu sinni
Góða helgi án horna og Helga Seljan
Didda, 22.8.2008 kl. 17:33
Yndislega falleg börn...einsog mamman með fallegustu hugsanirnar á blogginu...nema þetta kannski með hamsturinn...

Heiða Þórðar, 22.8.2008 kl. 19:20
Sætir krakkar
Huld S. Ringsted, 22.8.2008 kl. 23:38
Innlitskvitt
Til hamingju með Íslands helminginn
og Samhryggist með Spánarhelminginn 
Guðborg Eyjólfsdóttir, 22.8.2008 kl. 23:53
Þið getið þá bara glaðst 100% á Sunnudaginn
*Krossa putta*
Heiða: Já hvaðan kom það
Sporðdrekinn, 23.8.2008 kl. 06:05
Úps úps úps, þessu ætlaði ég nú ekki að sleppa: Þú átt farleg börn kona
Sporðdrekinn, 23.8.2008 kl. 06:06
Mikið svakalega eru þetta falleg börn sem þú átt þarna. Vonandi skemmtir þú þér vel í kjéddlingarpartýinu.
Eigðu ljúfa helgi fallegust.
Tína, 23.8.2008 kl. 07:52
Já vika er það heillin....
Elín (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 15:16
Falleg eru börnin þín.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 23.8.2008 kl. 15:21
Njóttu þín og þinna og alls sem lífið hefur upp á að bjóða, elsku Þórdís. Finnst gott að vita af þér á landinu bláa. Til hamingju með svona falleg og ljúf börn .... ómetanleg Guðsgjöf.
Hugarfluga, 23.8.2008 kl. 19:23
Hvenær kemuru heim frá Gilitrutt? Knúúúús á þig sætust!
Elín Björk, 23.8.2008 kl. 23:37
Nei auðvitað þetta var í gær.... hvar ertu eiginlega??
Elín Björk, 23.8.2008 kl. 23:38
Vó Enni er flottur


og Íris hadda sætsrúsla


Solla Guðjóns, 23.8.2008 kl. 23:51
Knús til þín og fallegu barnanana þinna.
Svava frá Strandbergi , 24.8.2008 kl. 00:16
Jii við yrðum nú huggulegar í samstæðum göllum
Margrét Birna Auðunsdóttir, 24.8.2008 kl. 00:22
Takk fyrir innlitið á sýninguna mína og bara takk fyrir mig. Mikið var gaman að hitta þig og fjölskylduna og við eigum örugglega eftir að hittast bráðlega aftur. Ég mæti að sjálfsögðu í Ráðhúsið til ykkar þann 30. ágúst. Í dag var bara gaman. Ég gekk lúnum fótum út kl. 01.30 því þá fór síðasti gesturinn út. Planið er að vakna snemma og horfa á leikinn, fara síðan í Sundhöllina og taka léttan sprett, áður en ég fer og tek niður sýninguna. Með svolitlum söknuði. Eigðu góða drauma og góðan morgundag. Kv.
Bergur Thorberg, 24.8.2008 kl. 03:02
Sæt eruð þið fjölskyldan.
Fátt jafnast á við frjálsleg og skemmtileg stelpupartý. Vona að þú hafir skemmt þér vel, ljúflingur.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.8.2008 kl. 15:06
Eftir góða göngu í gær er gott að lesa þig morguninn eftir og fara svo í vinnuna. Góðan daginn, dúlla!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 08:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.