28.8.2008 | 00:13
Fullkomnun ....
.... Í dýrðarljómanum gægjist hann með alla sína liti, sjálfur regnboginn þar sem blóm í öllum heimsins litum vaxa og dafna. Þar sem hvíldin og kærleikurinn hjúfra sig í rót eilífðarinnar.
Ég sá hvar draup af honum fögrum litríkum demöntum og reyndi eftir megni að gripa þá en greip þess í stað mína eigin hamingju blandaða litbrigðum hins eina sanna konung litanna.
Ég er ánægð með daginn sem leið með mér og ég er þakklát fyrir svo margt! Ég finn gleði í hjartanu fyrir nýrri sköpun og svo er ég alsæl með doltið sem best er að halda fyrir sjálfið. Sumt er okkur kærara en margt annað og ef best skyldi segja þá er þetta svona líf úr lífi "thing" Já, nú er ég komin út fyrir samhengi en það skiptir kanski ekki öllu máli.
Dagurinn var dásamlegur, undirbúningur og þjóðbúningadúkkan ég hef haft í nógu að snúast og þarf að hringsóla og snúa mér inn í morgundaginn. Upphengjur, krókar og krækjur, hjal og mal við Ellu sprellu Cinderellu og svo er sýningin barasta að fara að skella á ....
Guðný vinkona kom í heimsókn til okkar í Villihollt og við grömmsuðum í ísskápnum og græjuðum matarkyns. Það var ákveðið að fara á skauta á sunnudaginn Haddan mín er sérlega sæl með það !!!
Ég get svo sem svarið það fyrir ykkur að ef ég gæti séð norðurljósin núna þá væri lífið fullkomið!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
já flottur dagur sæta, koddu á msn!!
Elín Björk, 28.8.2008 kl. 00:15
Ef þú bíður aðeins lengur þá sérðu norðurljósin, ef þú getur það ekki skal ég senda þér cyber mynd ef þú vilt. Kærleikur og góða nótt
Ásdís Sigurðardóttir, 28.8.2008 kl. 00:24
Sporðdrekinn, 28.8.2008 kl. 20:54
Það er fátt sem gleður mann jafn mikið og þegar fólk finnur hamingjuna eða er hamingjusamt. Samgleðst þér innilega krútta.
Knús á þig dúllan mín og gangi þér vel með sýninguna.
Tína, 28.8.2008 kl. 21:24
Halló hamingjusömu konur............
Solla Guðjóns, 28.8.2008 kl. 22:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.