29.8.2008 | 01:10
Saxast á ...
... Minni svefn meira fjör!
Nú er best að ákalla meyjuna sem aldrei svaf og naut einungis ásta með bláeygum karlmönnum.
Reyndar gerði hún undantekningar þegar henni leist sérstaklega vel á gripina og leyfði þeim að strjúka hödd sinn er náði að lendum hennar.
Komdu til mín meyja, ástar og vöku
komdu til mín meya
veittu mér
ást,
vöku
og heimsins ráð
komdu til mín meyja, gefðu mér vökuna
og þorran sem kona þarf að þreyja.
Við familían vorum í yndislegu matarboði í sveitinni, fengum þar grillaðan lax sem var með mangó chutney og pistatsíu ábreiðu og litlar persil skreytta bullur. Örlítið hvítt til að skoða niður og nú situr kona og leggur lokahönd á sína þreyttu önd og ákallar meyju ástar og vöku.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:32 | Facebook
Athugasemdir
Á svo bara að vaka nóttina? hehehe, jiiii hvað er gaman hjá okkur!!!
Knúsogsmús
Elín Björk, 29.8.2008 kl. 01:48
"Heimsins ráð" Já takk ég tæki á móti þeim!
Sporðdrekinn, 29.8.2008 kl. 03:09
Ég er með gráblá augu... Te Quiero er ótrúlega flott! Yndisleg alveg.
Er alveg með ykkur í anda og sendi góða strauma til þín stöðugt vegna opnunarinnar ... kærleikskveðjur að norðan!!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 08:09
alltaf svo fallegar flísarnar þínar
Margrét M, 29.8.2008 kl. 11:29
Takk fyrir daginn sæta, nú eretta bara að smella saman!!!
Elín Björk, 29.8.2008 kl. 21:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.