Nánd kærleikans ...

... þegar sunnudagurinn býður daginn með svona fallegu veðri að það glitrar í glugga þá finnur kona kærleikans tilfinningu.

Heart

TAKK FYRIR KOMUNA ÞIÐ SEM SÁUÐ YKKUR FÆRT að heiðra okkur blogglistakonur með nærveru ykkar.  SAMSÝNINGIN stendur til 14.september.

Fjallið mitt tók myndir en vélin er í bílnum þannig að myndirnar koma síðar!

Í dag þá ætlum við að skella okkur í Brunch hjá Siggu vinkonu og þaðan munum við fara pakksödd á skauta.  Jedúdda mía, veit ekki hvernig þetta virkar því síðast þegar ég fór á skauta í leigubúnaði þá kipptist ég um allt svell með sinadrátt!  (hrikalegt) svo verður brunað í naflann (Þorláks city) og þar bíður okkar heimboð hjá ömmu mús um ca.1800 .......

 Set svo inn myndir af sýningunni þegar ég fæ vélina,  njótið dagsins ......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Dóra

Gaman að hitta þig í gær skvís og vá hvað myndirnar þínar og flísarnar eru flottar.  Gleðikonurnar heilluðu mig gjörsamlega og ég vildi sko að ég ætti fyrir þeim því þá væri ég sko ekki lengi að hugsa mig um - og bætti um betur með flísum líka haha.

Annars er kallinn alveg jafn heillaður og ég af flísunum (tókst semsagt að heilla hann ) svo að flís eigum við eftir að finna og fjárfesta í í framtíðinni það er algjörlega öruggt

Dísa Dóra, 31.8.2008 kl. 11:34

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Takk fyrir síðast, elsku Zordís. Það var gefandi og gífurlega gaman að hitta þig og ykkur og snjóta listar ykkar. Þið eruð allar svo frábærar, hver á sinn máta. Þegar ég fer að safna listaverkum á ný, mun ég sko kaupa af ykkur, ekki spurning. Eigðu góðan dag, elsku dúlla. Bið að heilsa gömlum eskfirðingum!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 31.8.2008 kl. 12:30

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir mig elsku Þórdís þetta var flott hjá ykkur og yndislegt að hitta þig

Kær kveðja og stórt knús.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.8.2008 kl. 15:57

4 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Þórdís mín. Leitt að geta ekki komið og séð sýninguna þína. En svona er lífið aðstæður koma upp sem hindra stundum áætlun okkar. Hlakka til að sjá myndirnar þínar á blogginu. Kær kveðja.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 31.8.2008 kl. 16:25

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Æ ég vildi óska þess að ég hefði verið í Reykjavíkinni, hefði þá svo sannarlega komið

Huld S. Ringsted, 31.8.2008 kl. 21:13

6 identicon

Það hefði verið gaman að geta verið hjá ykkur og samglaðst... en ég var með í anda. Kærar kveðjur úr nýafstaðinni Akureyrarvöku!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 21:26

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir gærdaginn elskan mín, það var rosalega gaman.  Knús á línuna

Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 23:10

8 Smámynd: Tína

Frábært að heyra að sýningin hafi gengið vel og að framhaldið lofi góðu. Hlakka mikið til að sjá myndirnar. Ertu ekki annars hérna einhversstaðar nálægt mér? Mig langar svo svakalega að sjá listaverkin þín en treysti mér ekki alla leið til Reykjavíkur?

Hafðu það annars alveg yndislega gott fallega kona.

Tína, 1.9.2008 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband