1.9.2008 | 20:33
Ótrúlega flottir leggir ...
... meina strákar!
Sit hér ALEIN, skutlaði fjölskyldunni minni í flug til Keflavíkur í dag. Þögnin kollvarpar sér í hausnum á mér og vel þrifalegir drengir hlaupa um á skjánum. K.R. (mitt gamla félagslið) er að keppa við Breiðablik.
Ég held með K.R. þar sem gamla hjartað slær í takt (núna var sko næstum því mark en K.R.ingar komu snilldarlega vörnum við) .....
Breiðablik er greinilega í ham þó ekki jamon serrano!
Nú eru elskurnar mínar sennilega að lenda eða lentar Spániá! Ég er strax komin með söknuð í hjarta. Hins vegar er allur aðskilnaður hollur svo framarlega sem hann varir ekki of lengi.
Ég sendi ykkur mis saludos ....
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hæ skvís, hugsaðu þér gleðina þegar þú hendir þér á fjallið þitt eftir hva.? 20 daga, þetta mín líða eins og örskot. Ertu með einhverjar myndir hér heima sem eru í stíl og stærð eins og mynd Hrannar og Dúu?? Knús á þig darling
Ásdís Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 20:41
Dósin þín, njóttu útsýnisins og láttu þig hlakka til að hitta Fjallið og afkvæmin að nýju!


Guðný Anna Arnþórsdóttir, 1.9.2008 kl. 21:23
Elskan mín þetta líður fljótt en ég skil þig vel
Ég held líka með Kr ekki segja neinum það.


Kristín Katla Árnadóttir, 1.9.2008 kl. 21:38
Ertu þá bara orðin grasekkja?? Stundum vex nú gras í fjalls hlíðum og jafnvel á KR-vellinum
Eða allavega svona grænir toppar í mölinni
Margrét Birna Auðunsdóttir, 1.9.2008 kl. 22:23
Þessir flottu leggir eru mjög góð ástæða til að horfa á fótbolta
Margrét Birna Auðunsdóttir, 1.9.2008 kl. 22:25
Hæ..og takk fyrir síðast. Þar sem þú ert nú grasekkja á íslandinu getum við fengið okkur kaffi og tár saman....skil þig vel að finna söknuð. En mundu að þú átt alveg familí hérna a meðan...knús.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.9.2008 kl. 23:02
innlitskveðja. Reyni að kikja við í Ráðhúsi á föstudaginn Verð þá búinn snemma í vinnunni og þarf að skreppa downtown
Ólafur fannberg, 1.9.2008 kl. 23:13
rosalega fallegar myndirnar þínar!!!
alva (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 23:28
Hæ, ég klukkaði þig... Tek undir með síðustu ræðumönnum
Margrét Birna Auðunsdóttir, 2.9.2008 kl. 00:00
Hæ dúlla, takk fyrir síðast
. Næst tökum við skautadansinn með stæl! 
Knús á þig, sæta drauma, sjáumst á morgun!
Elín Björk, 2.9.2008 kl. 00:16
Er ekki líka gott að hafa smá tíma bara fyrir sjálfa sig
Svona þar sem að það er ekki langt í að þú hittir fjölskylduna aftur.
Sporðdrekinn, 2.9.2008 kl. 02:44
Æ hvað ég skil þig vel með söknuðinn. Maðurinn sem ég deili skugga með fór 2x út í sumar með allt of stuttu millibili. En maður hefur samt gott af því að vera einn annað slagið og fá tækifæri til að eiga svo kallaðan "me time".
Knús á þig fagra kona.
Tína, 2.9.2008 kl. 07:38
maður getur saknað sinna endalaust mikið ---
Margrét M, 2.9.2008 kl. 09:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.