10.9.2008 | 12:34
Græn kona og væn ...
... ég sit í lopapeysunni við hlið arinsins og ilja mér.
Ég á von á Guðnýju vinkonu í hádeginu í hollt og grænt ..... spjall og næs!
Oooog, ég ætlaði að fara í smá ferðalag í dag með vinkonu minni og hennar vinkonu í góðan suðurlandsrúnt en þær ætluðu að leggja svo snemma af stað að ég bakkaði út! Ég tek það fram að ég get alveg vaknað á morgnanna en eg fer seint að sofa og vakna þ.a.l. ekki fyrr en um ca. 09.00. Kommon, ég er í sumarfríi
Var að spá í að leggja kanski í hann út í buskann ef Guðný nennir eða kanski við sitjum bara hér og glápum á tærnar á hvor annari ...
Við getum sagt hvor annari sögur af regninu sem reyndi að læða sér inn í nótt.
Við getum tekið spiladósina og horft á hana snúast áfram, hring eftir hring þangað til hugur okkar fer að snúast með.
Gaman af þessu !!! Ég fór í verslunina Maddamman á Selfossi í síðustu viku og sá svona spilahjól eins og er hér til hliðar. Á meðan við skoðuðum gamlar gersemar sem eru til sölu og sýnis fékk Orri Thor að leika sér með svipað tól. Gamalt dót, sumir hefðu sagt leikfangadrasl! Drengurinn undi sér afbragðsvel og allur kristallinn og stytturnar horfðu á kappsamann drenginn ....
Mæli með því að fólk kíki í þessa verslun, "maddamman" rétti staðurinn fyrir þá sem hafa unun og ánægju af antik. Ég sá klukku sem mig langar í og geri ráð fyrir að hún bíði eftir mér svo við getum tifað í takt inn í eilífðina.
Þess má geta að ég er búin að finna staðinn fyrir klukkuna mína sem færir mér minningarnar frá henni ömmu minni sem situr á fallegu skýju og saumar kross saum úr silkimjúkum skýjaþráði.
Amma þessi klukka styttir tímann þangað til við hittumst á ný í tímanum og rúminu.
Þegar ég sest niður á ilmandi moldina og horfi allt í kring, finn dýptina og nálægðina við jörðina, finn kraft móður get ég sagt við sjálfa mig að ég tók rétta ákvörðun að velja vinnustaðinn minn, velja leiðina sem er nú framundan. Ég er konan sem situr í helli sínum og skapa í fangi móður jarðar.
Það er góð tilfinning að takast á við daginn.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:40 | Facebook
Athugasemdir
Maddaman er fín búð! Þar keypti ég mér "nýtt" smárósótt bollasett frá Póllandi um daginn.
Þú tókst rétta ákvörðun! Alveg hárrétta! Þú ert rétt kona á réttum stað á góðum tíma
Hrönn Sigurðardóttir, 10.9.2008 kl. 13:20
PS! Þú veist að þú ert sínkt og heilagt velkomin í kaffi til mín
Einu skilyrðin eru að mæta í rétt hús!
Hrönn Sigurðardóttir, 10.9.2008 kl. 13:22
Skemmtu þér vel Þórdís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 10.9.2008 kl. 13:28
Ég átti svona spiladós þegar að ég var stelpa, ekki eins á litinn samt og við kölluðum hana skopparadós. Enda spilaði hún ekkert lag það kom bara skemmtilegt hljóð frá henni þegar að hún var kominn á fullt
Takk fyrir að kveikja á þessari minningu elskuleg
Sporðdrekinn, 10.9.2008 kl. 13:53
hey ég verð að fara í maddömuna og tékka á spiladósinni. Er búin að leita þvílíkt af slíkri gersemi handa skottinu en ekkert fundið.
Dísa Dóra, 10.9.2008 kl. 15:06
Sjámust á morgun
Solla Guðjóns, 10.9.2008 kl. 20:43
Mér líkar sérdeilis og einkar vel við bæði grænar konur og vænar. Tal´ekki um séu þær bæði grænar og vænar.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.9.2008 kl. 23:20
Ohhhhhhh ég átti svona þegar ég var lítil................. og maður minn hvað ég gat setið endalaust með þetta dót!!
Það hefði verið gaman að eiga þetta enn.
Sjáumst annars í dag krútta.
Tína, 11.9.2008 kl. 06:56
Þessi spiladós vekur svo sannarlega upp minningar
reyndar var hún einsog hjá Sporðdrekanum kölluð skoppardós á mínu heimili.
Það er góð tilfinning þegar maður finnur að rétt ákvörðun hefur verið tekin, njóttu
Didda, 11.9.2008 kl. 09:18
Skopparakringla var þetta kallað á mínu heimili og á svona litla sem ég skemmti litlu barnabörnum með þeim finnst svo gaman að stoppa hana þegar hún fer á fullt og hlæja svo mikið
hafðu það ljúft Elskuleg
Brynja skordal, 11.9.2008 kl. 11:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.