Hringvegurinn ...

.... vegur sem nær í heilan hring.  Ég fór í ferðalag í gær í æfingaferðalag og lá leiðin út úr höfuðborginni.  Pendúllinn var meððíför og þegar ég nálgaðist afleggjara að Nesjavöllumm þá var ekki annað hægt en að beygja og leiddi kristallinn mig alveg frábæran lítinn hring.

Þvílík fegurð sem mætti okkur vinkonum og sé ég svolítið eftir að hafa ekki staldrað við í Vinaskógi og styrkt systrabönd okkar Guðnýjar W00t en áfram lá leið og ég stöðvaði bifreiðina við Þjóðgarð okkar íslendinga Þingvöll.  Ég var með batteríslausa vél en náði samt nokkrum myndum út ferðina.

Það var SKO túrhestast í gær og sáum við smjattandi kindur sem voru ligegladar og sælar.  Við ætluðum að hitta vinkonu mína Önnu með Tomokosan en þær svöruðu ekki símanum og sennilega höfum við verið rétt á eftir þeim.

Kaffisopi

Vonandi áttu þær góðan dag og ánægjulegar upplifanir.

Á meðan æfingaferðalaginu stóð hringdi síminn minn stöðugt og Guðný svaraði fyrir mína hönd og leysti það vel úr hendi þangað til að síminn bara dó.

Eftir Þingvöll lá leiðin í Grímsnes að Sólheimum, vinnudegi var að ljúka og sáum við göngugarpinn Reyni Pétur og margt mætt fólk.  Ooooog svo hittum við Ástu Jakobs Þorlákshafnarmær (hún er hreint yndisleg ung og efnileg kona) .... við sáum myndlistarsýningu og fjárfestum í smáræði úr verslunin Vala.  Guðný keypti sér hunangskerti og ég jurtasjampó og astralblómaspil, grænmeti og sólheimamerkið.  Konan var hreint óstöðvandi. 

Í dag ætla ég að leggja í reisu.  Pakka tannburstanum og t-streng í koffortið og leggja land undir fót.  Það er útlit fyrir bjart og gott veður, inni sem úti.  Pendúllinn sá ráðríki kristall hvíslar svo að mér leið en tilfinningin segir að smátröll og álfar verði á vegi mínum.  Hver veit nema ég gisti á Höfn í Hornafirði í nótt .... Whistling

Lost in Næsland

Ef ekkert heyrist frá mér þá lít ég út eins og þessi kona hér að ofan með 3 koffort, T-streng og tannbursta.  Treysti á guð og ótæmandi gæfu í þessari för minni.

En fyrst verður það kaffi á Krúsinni.

Sjáumst


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nohhh..þú ert bara aldrei kyrr kona...gangi vel á ferðalaginu um landið.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.9.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hlakka til að sjá þig! Rosalega líturðu vel út

Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 13:16

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....þarna vantaði bara: "frábært hár....."

Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 13:16

4 Smámynd: Brynja skordal

Góða ferð og farðu varlega knús á þig fallega kona

Brynja skordal, 11.9.2008 kl. 21:52

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Góða skemmtun og gerð, sæta kona.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.9.2008 kl. 22:25

6 Smámynd: Didda

Yfirnáttúruleg mynd af þér  

Gangi þér vel með gæfuna, tannburstann og T-strenginn og muna svo eftir að hlaða tækin kona

Didda, 11.9.2008 kl. 23:24

7 Smámynd: Tína

Jæja þú hittir í það minnsta einn álf. Nefnilega mig  Hrikalega gaman að hitta þig en jafnt leiðinlegt að vera að kveðja þig líka. Og ég sem var að kynnast þér. En takk fyrir yndislega skemmtilega samverustund á krúsinni.

Farðu vel með þig fallega kona og megi allar góðar vættir vaka yfir þér.

Tína, 12.9.2008 kl. 06:27

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 12.9.2008 kl. 21:48

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Sýningin hennar GSS er æðisleg!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.9.2008 kl. 22:13

10 Smámynd: Inga María

hvar kaupir maður sér svona pakkaferð.....flökkukella

Inga María, 13.9.2008 kl. 11:44

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Rosa flott mynd af þér......Frábært hár.....

Solla Guðjóns, 13.9.2008 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband