15.9.2008 | 19:06
húsmæðraorlofi að ljúka ...
Dagarnir líða eins og þeir hafi aldrei gert neitt betra og skemmtilegra. Klukkan sem ég keypti í Maddömmunni er algerlega frábær og er ég nokkuð viss að hún eigi eftir að mæla andans líðandi stundir og koma mér á réttan stað á réttum tíma.
Ekki veitir af í landi mañana þar sem tíminn er afstæðari en allt stæðilegt af.
Ég sit og bíð eftir að tíminn líði svo ég geti komið mér af stað á lítinn sætan fund hjá góðu fólki. Eftir það væri jafnvel ráð að kíkja í netta heimsókn til Elínar .... einn kaffisopa og smá kjéddlingar kjaftæði sem er æði eins og við Kjérlingar einar vitum. Þó ekki Einar frændi!
Ég heyrði í fjölskyldunni minni og allt gengur prýðilega án mín sem var náttúrulega vitað fyrirfram.
Það verður gaman að hitta þau í lok vikunnar.
Íslandsævintýrið senn á enda en áður en því lýkur þá mun ég hitta skemmtilegar konur á morgun þriðjudag. Um hádegisbil hitti ég eina frábæra konu sem er eiginlega granninn minn! Í eftirmiðdag fer ég á Grensás að heimsækja aðra frábæra og duglega konu Ooooog, svo um kvöldið hitti ég margar frábærar konur, sumar hverjar ókunnugar.
Konur eru æði
Á miðvikudaginn held ég áfram útburði á verkum sem seldust á sýningunni og fer í nudd með vinkonum mínum og geri ráð fyrir að busslast á pjólunni í nuddpottinum (sjor (ekki sjór)) ..... Geri ráð fyrir að hitta Bidduna ef hún verður laus úr handjárnum vinnunnar eftir það .....
Á fimmtudeginum fer ég í smætluveislu á Vesturgötuna í hús sem langalanga amma mín átti.
Á föstudeginum fer ég og kveð nokkur leiði, ætla ekki að láta mér leiðast og hitta vinkonur um kvöldið ................. last night out!
Þyrnirós fann sinn stað í Danmörku, ég þarf ekki að fljúga þangað. Ég náði að tjá mig á dönskunni minni sem var vel. Indælis fólk sem átti leið um Ráðhúsið í gær Sunnudag.
Hlakka til að fara heim
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir innlitin og kommentin á okkar síðu, alltaf svo gaman að fá kveðju :)
Góða ferð heim til Spánar.. og knúsaðu þar alla frá okkur og sjálfa þig líka!
Kv. Bjarney og Haddi
Bjarney (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 19:23
Það er víst um að gera að nýta tímann vel fallega kona
Sporðdrekinn, 15.9.2008 kl. 19:27
Hlakka til..........
Hrönn Sigurðardóttir, 15.9.2008 kl. 19:38
HAfðu það gótt í landinu sem kemur mér svo "spánskt fyrir sjónir"
Brynjar Jóhannsson, 15.9.2008 kl. 21:42
Það hefði verið gaman að hitta þig...vera svona ein af þessum ókunnu konum
( ég er að vinna í höfuðborginni fimmtudag, föstudag og kanski laugardag..)..sem þú átt eftir að hitta áður en þú ferð til sólkríkara og heitari staða..eins og farfuglarnir á haustin....Heyrist á öllu að þú sért búin að safna vel í sarpinn á meðan þú varst hér...Segi svo bara góða ferð ef að pendúllinn þinn ákveður ekki að við hittumst áður en þú ferð af landi brott...
Agný, 16.9.2008 kl. 00:53
Gott að þú skemmtir þér vel Þórdís mín. Kær kveðja ljúfust
Kristín Katla Árnadóttir, 16.9.2008 kl. 08:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.