18.9.2008 | 04:16
Til í raun ....
.... smá svona hugvísindaleg í sjálfu sér.
Það sem gladdi mig hvað mest þegar ég vaknaði í morgun var kyrrðin og dagsbirtan. Sposk að vanda eftir hárburstun og tannburstun, uppáklædd fyrir átökin.
Ég á leið í hús sem tilheyrir mér og mun ég njóta þess að hlusta á andans tákn og tíma. Ég kem færandi hendi og það er gaman, tala nú ekki um þegar gestgjafinn er jafn interesant og raun ber vitni.
Ég er svo þakklát að geta spókað mig um í nýjum konubúningi með úthvíldan huga (þrátt fyrir átakið að vera) .....
Vinningsmiðinn minn í lottóinu greiðir leið í óskir hugans og konan heldur sæl á nýjan áfangastað.
Í raun erum við til á svo ótal vegu, í ótal myndum með ótal fólki. Eitthvað svo óteljandi ó tal sem gæti allt eins verið latte með mikilli froðu. Talandi um kaffi þá er ég víst eina konan í heiminum sem skúffa froðunni frá, hef ég heyrt en ástæðan fyrir því er að mér þykir mjólk vond en alveg er hún afskaplega falleg! Svoooo falleg að ég læt mig hafa það að fá mér latte SJALDAN.
Ég átti gott tal með konu sem ég þekki betur eftir daginn og lífsgátan er ekki svo flókin þegar rýnt er í galdurinn. Eða er galdurinn að rýna í fólk og kynnast því betur, verður lífið betra ef við opnum hjarta okkar og ýtum hrokanum og fordómunum frá. Kanski er það rétt!
Fyrir alla peningana sem frúin í Hamborg eftirlét mér ætla ég að byrja á því að tendra ljós í Landakotskirkju og fara með bæn til allra þeirra sem þurfa ljósið.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.