24.9.2008 | 15:37
Bling .... Dong ....
Regnið lætur ekki að sér hæða þessa stundina. Það er alltaf ljúft að hlusta á regnið þegar það skellur í götuna, finna svo ilinn að vera inni eða gleðina að dansa berfætt af öllum krafti með lemjandi regnið í andlitið.
Seinni kostinn uppfylli ég ekki nema að miðju sumri og þá rignir sjaldan!

Það er nú ekkert leiðinlegt að vera í rigningunni með ljónum og fílum og allskonar dýrum.
Í dag hafði ég ráðgert að fara út að skoða hellinn minn og ég sé að móðir náttúra heilar jörðina fyrir mig áður en ég legg í hann. Ég er full af forvitni og spenningi sem er notaleg tilfinning!
Það er tími kominn á andann og að ferðast í rúminu án þess að rugla sig í ríminu.
Bling ...
Þá heyrist Ding, dingaling,
bjallan hljómar, gestir óma,
Út á hlað
rigningarbað.
Ég brosi til þín,
þú brosir til mín.
Dong ...
Hljómur fer, engin hér,
spegilinn brosir til mín.
Augun blá
blikið sjá,
gnægð þú móðir jörð.
Regnið flæðir, hjartað glæðir,
enni mínu á.
....
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Jesús minn hvað þú ert alltaf skáldleg....það bara renna uppúr þér limrurnar eins og lýsandi eldhnettir. Það hlýtur að vera gott að vera alltaf svona flæðandi og æðandi um alheimsins orkulendur eins og þú Zordís mín. Kannski er þetta sama rigningin hér og hjá þér???
Knús óða kona
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.9.2008 kl. 16:16
Þessa stundina er sól á fróni.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.9.2008 kl. 16:20
Sakna þess að geta ekki drukkið með þér afsláttarkaffi á Krúsinni
Hrönn Sigurðardóttir, 24.9.2008 kl. 19:29
Flott
Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 21:45
Í dag var bæði rigning og sól hér heima.
Svava frá Strandbergi , 24.9.2008 kl. 22:21
Skáldleg ertu ljúfan, her er sól en frekar kalt
Kristín Gunnarsdóttir, 25.9.2008 kl. 10:46
Langaði bara að senda þér stórt knús sætust
Gott að vera komin í faðm familíunnar!!
Elín (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 13:15
Ég fór allt í einu að hugsa um að hlaupa berfættur í grasi ... með úðara á fullu og tísta svo í hvert skipti sem maður hljóp undir bununa... smá nostalgía í gangi - en af hverju ekki bara að framkvæma þetta? Ég meina... það er gras hér fyrir framan safnið... við eigum úðara ... einfalt mál?
Knús og kveðjur til þín, sætasta.
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 14:08
Solla Guðjóns, 25.9.2008 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.