Rojo vivo, la vida y el amor!

... Sannarlega er ástin rauð og lífið ljúft þegar tvö hjörtu mætast HeartHeart.  Þegar lífið er ljúft situr ástfangin kona heima og stagar í gamla sólhlíf.

Sólhlífina ætlar hún að nota á síðustu aurana sína.  Aurana sem hún hefur safnað árum saman til að eiga fyrir rósrauðu lífinu.  Sólhlífin á að þjóna tilgangi fallhlífar sem er eldrauð með oggulitlum silkiormi.  Vonandi verður sólhlífin svo mögnuð að hún megni að halda krónunni í hæstu hæðum, lengi, lengi, lengi alveg við tásur himnaherrans. 

Regnhlífin rauða ...

Þessi gamla sólhlíf er sko betri en engin og nú get ég bundið aurana við handfangið .....

Rautt er litur ástar, litur styrkleikans og reiðinnar.  Í rauðu sveipum við okkur dulu styrksins, ástar og verjum okkur gegn ýmiskonar hættum.  Rauðir skór eru t.d. frábærir ferðafélagar, taka stundum sjálfstæðar ákvarðanir og við vitum ekki af neinu fyrr en hviss bang og þú ert komin eitthvað allt annað en þú ætlaðir þér.

rauðir draumaskór prinsessunnar

Draumasýn prinsessunnar í rauðu skónum tekur engann enda.  Hún hvílir sig í grænni dögg og lætur hugann líða um heim og geim.  Hvar á hún heima og hvert fer hún?  Prinsessan ætlar að nota græna litinn og tala við fjármálaheima og setjast að samningaborðinu og fá þessa helstu herra til að græja þetta.  Samþykkja það sem þarf, svo litlar prinsessur geti haldið áfram að lifa.

Finna til og vera til.  Hún veit það innst inni að ástin býður og styrkist með fallegum rauðum lit.  Litur ástarinnar sem heilar styrkinn í hana og þorið.  Já, já, krónan jafnar sig, ekki spurning hvort heldur hvenær.  Við skulum sveipa krónunni okkar rauðri dulu og hífa hana upp til himna, nóg er nóg!

Lífið er lítil ástarsaga!

Lífið er lítil ástarsaga.  Ég læri að elska og elska að lifa.  Lítið bros tindrar bál í hjarta mínu, í hjarta þínu því í ástinni erum við jöfn, eitt og ekki neitt ........

Rauður litur heilar okkur og getur hjálpað okkur þegar við eigum við öndunarerfiðleika að stríða.

Rauður litur getur líka stuðlað að betrum fyrir lágan blóðþrýsting.  Þið sem hafið of háan blóðþrýsting endilega farið í eitthvað orange, litur sem verndar!

Rauður litur er streymið og næringin en eins og með allt jafnvægi vinnur rauður litur á móti og getur hættu og rifrildi, stríð og fórnir.  Litirnir eru heillandi og mikilvægir!  Þessu til viðbótar langar mig að nefna HUGREKKIÐ sem Dísa Dóra nefnir, rauður litur er hugrekki eins og ástin!

Stundum leitum við í ákeðna liti þegar við borðum, við eigum t.d. að jafna litina í fæðunni, borða rautt, gult, grænt og blátt ... alla liti til að halda jafnvæginu ... Heart

Svo í lokin færi ég þér fallega rós.  Rauð rós táknar ástríðuna og játninguna.

Rauðar rósir ... fengin að láni hjá Raymond Rassette

Eldrauð og heit rós


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú ert svo mikil dúlla!

Hrönn Sigurðardóttir, 30.9.2008 kl. 17:58

2 Smámynd: Dísa Dóra

Í mínum huga hefur rauði liturinn líka alltaf merkingu hugrekkis.  Veit nú samt ekki afhverju.

Knús til þín mín kæra

Dísa Dóra, 30.9.2008 kl. 17:58

3 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Er ekki rautt þinn litur mín kæra?

Svona tilfinningavera eins og þú á einmitt að klæða sig í alla liti regnbogans, ekki bara þá dökku!

Haustkveðjur.

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 30.9.2008 kl. 18:26

4 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Takk fyrir rósina...Elska raudann lit.

Gudrún Hauksdótttir, 30.9.2008 kl. 19:05

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Rautt segirðu....Ég verð alltaf að eiga par af rauðum skóm.

Mjög yndisleg færsla fyrir konu sem er farin í smá rautt ferðalag.

Sjáumst!!! 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.9.2008 kl. 20:17

6 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Flott færsla

Sigríður Þórarinsdóttir, 30.9.2008 kl. 20:28

7 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Rautt er svo sannarlega litur ástarinnar og það þarf nefnilega hugrekki í það mál og það hafa ekki allir. Rautt er frábær litur,litur orkunnar og er virkilega gefandi.

Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 30.9.2008 kl. 22:43

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

takk mín kæra kona

kærleikur

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.10.2008 kl. 06:41

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Rautt er hotty en það er nú samt ekki sama hvað er rautt.eða ég meina rauður kæðnaður er oftast hotty en rauður bíll..neee...rauður stóll.....ja...

Rauð rós er allt sem segja þarf......

lovjú og takk fyrir rósina og rauðu færsluna.

Solla Guðjóns, 1.10.2008 kl. 12:02

10 Smámynd: Margrét M

rautt gefur orku

Margrét M, 1.10.2008 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband