2.10.2008 | 12:14
Blanca como la nieve ...
Frá allri litagleðinni og þerapíunni sem ég er í þessa dagana þá ætla ég að tæma hugann algjörlega og hugsa um himininn og hans fagurskapaða lita mót.
Hvítt í hugann með smá bláu ívafi til að annmarka hvítuna sem er svo falleg. Ég keypti mér þetta líka fína undirpils í gær, brakandi hvítt undir hvítt bómullarpils sem ég ætla að láta mig vaða í næstu daga. Ég á eftir að gera upp við mig hvort ég fari í gulu skyrtuna mína eða þá grænu??? Kemur í ljós en ég lofa að taka partýmynd af tilefninu. Ég þarf að tylla mér á nef og sjá hvaða liti líkaminn þarfnast þar sem yfir stendur allsherjar andleg og líkamleg hreinsun.
Hér er eitt af mínum uppáhaldsblómum Margarítan eða Baldursbrá.
Þegar ég sé þessi sætu blóm sem ég nota oft í myndefni mínu þá hugsa ég um hana ömmu mína á himnum. Við garðinn hennar voru aragrúi af Baldurbrám og gat ég setið heilu eilífðirnar að dást að þeim, búa til hárskraut og telja ástarsögur eina af annari. Amma, minningin er góð!
Olía á striga, Eilíf Ást
Hér er Baldursbráin töluvert ræfilsleg en stendur fyrir sínu ... þegar barnið í bumbuna er komið þá opnast fegurstu gáttir heimsins. Upplifun og eftirvænting. Lífið er sannarlega sælt þegar við bíðum lítils krílis. Til hamingju þið fjölmörgu bumbubloggarar með það nýja og bjarta sem er framundan.
Hvítur litur táknar tryggð og hreinleikann, táknar frið og frelsi.
Hvítur er sakleysið og æskan hin eina fullkomnun.
Það er ekki að ástæðulausu að englar og hrein tákn eru íklædd ýmind hvíta litsins.
Hvíti liturinn gerir það að verkum að við fyllumst trú og trausti sem ekki er vanþörf á.
Verst að hafa ekki snjóinn til að gera nokkra engla.
"Solla þú tekur nokkra fyrir mig þegar byrjar að snjóa, er það ekki?"
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hann elskar..........
Sporðdrekinn, 2.10.2008 kl. 12:56
túttublóm -- man ég eftir að baldursbrár voru kallaðar
Margrét M, 2.10.2008 kl. 12:59
Kæra Zordís...Tú verdur flott í dressinu hvora blussuna sem tú velur.
Ég er líka svo hrifin af baldursbrá.................Er alltaf med hana í potti í gardinum á sumrin.
fadm,lag á tig inn í gott kvöld.
Gudrún Hauksdótttir, 2.10.2008 kl. 18:57
Í þessum orðum töluðum er byrjað að snjóa! Ég skal skella mér út og græja nokkra engla
Hrönn Sigurðardóttir, 2.10.2008 kl. 22:06
Hæ krúzlan mín, long tæm nó hír
-Vona þú hafir það huggó þarna í evruveldinu 


Hitti vonandi á þig á msn fljótlega, er að klára vinnutörnina "rétt bráðum"
Knús og kossar yfir til þín mín kærust!
Elín Björk, 2.10.2008 kl. 22:08
Hafðu það sem best. Gott að kíkja á bloggsíðuna þína.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 3.10.2008 kl. 09:23
Ertu að tala um ömmu þína í Sjólist á Eskifirði? Mér finnst ég muna eftir þessu; en þú veist, falskar minningar og allt það ....
Margarítan er líka eitt af mínum uppáhaldsblómum og ég er alltaf með þær í potti á sumrin. Nú breiðir sig yfir þær snjór og ég er búin að halda kveðjuathöfn fyrir þær og hin sumarblómin í pottunum.
Stundum langar mig að búa á Spáni. Þar er nefniulega engin króna og enginn seðlabankastjóri sem heitir DO og græðgisvæðingin hefði ekki fengið að ganga svona langt eins og hér.
Samt er Ísland best í alheimi; er það ekki undarleg þversögn að ákveðnu leyti??? Maður spyr sig - og aðra.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.10.2008 kl. 11:09
Takk fyrir fallegt blogg og kveðjuna, ljúfa kona
Hugarfluga, 4.10.2008 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.