Snillingar ... við erum öll snillingar!

Það má nú segja að við erum öll snillingar annað slagið.  Að díla við snillinga er bara eins og það er og best að fljóta bara með þangað til annað kemur í ljós.

Það er dásamlegt veður og notalegt hérna mín megin, lítið sem ekkert í fréttum annað en þetta venjulega hversdagslega.  Þetta hversdagslega sem er svo gott og notalegt.

Ég er svo aum í öxlinni, sef eins og drottning en rækta akróbatískan svefn sem er nýjasta trendið ... ég er sennilega ekki nógu flexible týpa því liðirnir eru ekki jafntilbúnir og hugurinn og með reglulegu millibili dofna ég upp á höndunum.  Ætti að kaupa mér Liðamín (er það ekki annars til) .....

Nennan mín var ekki uppá 10 fiska og ég lét mig hafa það að fara frammúr klukkan 08.30 en ég átti að mæta á mikilvægan fund skömmu síðar og eitthvað þurfti konutetrið að græja sig til.

Morgunmatur var aloe vera safi og 2 Kiwi, frískandi fyrir kroppinn.  Í hádeginu fékk ég mér Melónu og hráskinku, bara gott.  Á prímusnum mallar svo tómatlöguð grænmetissúpa sem verður í matinn næstu daga.  Það er ekkert eins gott fyrir kroppinn eins og þessi matarmikla súpa.

Grænt og vænt ....

Gott í mallan,!  Gulur, rauður, grænn og og og blár! 

Vonandi eigið þið snilldarlegan dag í allan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Nennan hér er heldur ekki upp á marga fiska enda mikid búid ad gerast um helgina og ég ekki svona diskó,friskó tíba lengur....Tó ég hafi dansad mikid á laugardagskvöldid ad ég fekk hardsperrur á sunnudag....Bara gaman ad tessu..

Knús á tig .

Gudrún Hauksdótttir, 6.10.2008 kl. 13:51

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég eldaði gúllassúpu á laugardaginn! Síðan hef ég ekki þurft að elda....

...bara baka brauð annað slagið ;)  

Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 14:11

3 Smámynd: Inga María

..hvar geymir þú súkkulaðið...eða er mín í heljarins átaki...?

Kveðja

Inga María, 6.10.2008 kl. 21:15

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

litríkt líf í orði og á borði ...

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.10.2008 kl. 21:43

5 identicon

Svartur hvítur fjólublár ... var það ekki annars?

Kærar kveðjur, dúlla!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 00:06

6 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 7.10.2008 kl. 02:32

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 7.10.2008 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband