Smá dekur framundan ...

... ekki veitir af smá dekri, hlakka til að fá smá spjall um daginn og veginn.

Öll þessi umræða sem á sér nú stað í þessum heimi sem við lifum og hrærumst í hefur áhrif og finn ég fyrir örlítilli depurð sem er auðmjúk tilfinning.  Vona að depurðin dragi mig ekki á dýpri þrep enda engin ástæða til fyrir mína parta.  Ég hef einhverja samkennd sem ég losna ekki við.

Kanski er ég að stíga inn í svona hippa love thing tímabil, hver veit?

Ég er að mála fyrir sýningu og gengur mér bara mjög vel með það verkefni InLove 

Hellirinn er á sínum stað og langar mig mest til að skríða inn og fara í hýði en það er ekki kominn tími enn.  Fyrst er það dekur og dásamleg samvera og svo má kasta sér í fleti.

Morguninn var strembinn, fyrst móðgaðist ég pínulítið yfir ósvífninni sem áttu sér stað í bréfasamskiptum.  Mér fanst það ekki svara vert og fór bara á staðinn og eftir að hafa rifið mig niður í rassgat og barist fyrir málstað þá virðast hlutirnir ætla að fara mína leið.  Það er svo vont að reiðast, tilfinning sem ég kann afskaplega ílla því á tilfinningasviðinu þá ruglast ég oft og læt tárin læðast með en núna var ég ofursvöl og komst yfir þessa ljótu tilfinningu og viðkomandi endaði með að biðja mig afsökunnar og útskýrði m.a. annars fyrir mér tilraun sína að svína á mér.

Já það er ekki allt elsku amma í þessum skemmtilega lífsleik en ég veit að ég hef alla mína engla, anda og vætti í vasanum til að styðja mig þegar svo ber undir.

Heart

SteingeitSteingeit: Þegar þú trúir á eitthvað, þarf kraftaverk til þess að þú skiptir um skoðun. Það eiga margir eftir að reyna, en þú ert fastur fyrir sem fjall. Ekki síst í kvöld.

W00t

Það er komið kvöld einhversstaðar í heiminum og mér finnst stjörnuspáin mín í dag ekki svo vitlaus miðað við það sem ég þurfti að tækla í morgun.  En nóg um það!

Ég verð orðin gyllt af gleði þegar líða tekur á kvöldið ... ekkert tilfinningalegt "blue thing" ....

Set upp zessa gylltu krónu med kvöldinu ...

Ein tóm gleði


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gott að fá smá dekur Þórdís mín stjörnuspáinn þín er góð. Risaknús

Kristín Katla Árnadóttir, 8.10.2008 kl. 14:47

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tú ert bara svo flott eins og drottning og myndirr sæma tig vel med tessa fallegu kórónu sem fylgjir blogginu í dag.

Fadmlag á tig.

Gudrún Hauksdótttir, 8.10.2008 kl. 14:57

3 Smámynd: Margrét M

reið er slæm en dekur er yndislegt

Margrét M, 8.10.2008 kl. 15:17

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Alltaf gott að ímynda sér bara að maður sé að leika hlutverk - þegar þarf að bregða yfir sig reiðiham......

Kostar svo lítil átök þannig ;)

Góður dagur fyrir dekur. Lovjú sæta 

Hrönn Sigurðardóttir, 8.10.2008 kl. 18:34

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Gott að vera föst sem fjall og eiga fjall ... svo er hægt að ganga á fjöll og fara á fjöll... og síðan má á það minna, að trúin flytur fjöll ...

Viltu fá meira að heyra?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.10.2008 kl. 22:11

6 identicon

Ég fékk kúpul í hausinn í kvöld ... þegar ég þurfti að skipta um peru í forstofunni niðri ... það var svona það versta við daginn held ég ...

mér datt það í hug þegar ég sá kórónuna ...

kossar og knús á þig! 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 23:30

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Gleð og dekur það eina sem að þarf

Solla Guðjóns, 9.10.2008 kl. 00:53

8 Smámynd: Dísa Dóra

Takk fyrir yndislega kveðju skvís - gladdi mitt litla hjarta

Dísa Dóra, 9.10.2008 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband