15.10.2008 | 00:14
í næturhúmi kúri ég með henni ...
.... Nóttinni sem hefur tekið við af degi.
Kvöldið hefur farið í föndur og dundur. Keypti spes pappírslím út í búð og nældi mér í bunka af dagblöðum á neðri hæðinni og ætlaði að líma á eitt stk striga og búa til abstrakt myndir en hætti svo við það og fór að gera meistarastykki í pappírsdúkkugerð ... engin dúkkulísa sem það verður ef það verður eitthvað úr þessu .... Fótstór og búklítil bredda!
Sara ég hefði átt að koma á námskeið hjá þér til að fá undirstöðuatriðin á hreint í þessu malli mínu. Fyrsta límhræran hjá mér var vorkunnarleg og ég henti henni. Næsta blanda var nokkuð góð og ég hafðist handa;
haus, háls, brjóst og hendur .... úff! Þetta verður væntanlega lítill pappavesalingur en ekki skyldi kona örvænta svona fyrir fram. Svo eyddi ég tíma í að gera pappakrús með vængjum! Þvílík spenna sem kraumar í konukroppi að það hálfa væri nóg.
Ég held það væri ráð að kasta mér á kodda því það er stór dagur á morgun og það er um að gera að vera fínn í tauinu sem holdinu. Brjálæðislega verð ég fegin þegar þetta verkefni er frá!!!!
Það er hrikalegt drasl hjá mér núna .... málning út um allt, pappírsræmur og blöð á víð og dreif. Nú er það spurningin um að ganga frá eða drössla sér snemma fram úr á morgun??? Best ég gangi frá núna, svei mér þá það er alltaf gott að lúra aðeins á öðru eyranu og hlusta á morgunverk hinna.
Senjórítan er hálfmáluð og má segja að hún sé þjóðleg að spænskum hætti ... tek myndir við tækifæri af þessu föndri mínu .... Það hefði verið ráð að hafa einhver undirstöðuatriði í þessu malli en svona okkar á milli þá var þetta mjög gaman, tíminn flaug áfram!! Oooog ég var ein með sjálfri mér, þvílíkur snilldar félagsskapur sem ég er.
Svo er það heill dagur framundan þegar nóttin læðist frá ...
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Sporðdrekinn, 15.10.2008 kl. 02:16
Hlakka til ad sjá meistaraverkid..
fadmlag til tín mín
kæra Zordís
Gudrún Hauksdótttir, 15.10.2008 kl. 06:38
Solla Guðjóns, 15.10.2008 kl. 12:28
Jiii en spennandi að búa til dömur úr pappír og lími....hlakka til að sjá skvísuna fótstóru.
Annars allt gott að frétta og við...við erum allir íslendingar auðvitað...sendum ástarknúsikveðjur til Spánar. Veitir ekki af að eiga vini á báðum stöðum sko þegar svona árar...knús
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.10.2008 kl. 12:39
Mér finnst eins og það verði meira úr tímanum hjá ykkur á Spáni heldur en ég á Fróni. Kannski vegna þess að við höfum svo mikið að gera við að fylgjast með fréttum af bankahruni, Dow Jones vísitölum og þannegin yndislegheitum. Geturðu ráðlagt okkar eitthvað (annað en að sleppa fréttunum...)?
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.10.2008 kl. 17:47
Hlakka sko mikið til að sjá afraksturinn.
Kram og knús inn í daginn þinn
Tína, 16.10.2008 kl. 06:50
Vatnsberi Margrét, 16.10.2008 kl. 09:22
Hjartans knús og faðmlag
Kristín Katla Árnadóttir, 16.10.2008 kl. 11:50
áhugavert
Margrét M, 16.10.2008 kl. 13:07
Brynja skordal, 16.10.2008 kl. 13:39
Kveðja til ykkar frá okkur í Odense.
Og við sjáumst í des!
Bjarney (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 17:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.