17.10.2008 | 00:23
. . . . . . . 7 og síðan
ekki söguna meir!
Í morgun þann 17. þessa yndislega haustmánaðar nuddaði ég augun, þreytt eftir stuttan svefn. Lét það ekki á mig fá og útbjó nesti fyrir litla drenginn minn og hann fór sáttur og sæll í skólann.
Mín leið lá á fundi og gekk það vel, náði að klára ýmis verkefni og sé nú loksins fyrir endann á þessu og það styttist í að ég láti af störfum. Já, ætla svei mér þá að fara bara á eftirlaun og þiggja húsmæðraorlofsbætur frá spænska ríkinu ( hahhahhahah góóóð) ...
Nú er ég búin að læra að elda að hætti tengdó en fyrir mitt húsmóðurlega leyti þá eiga siðir að fylgja tengslum og ég hef skipað Fjallið í alla þessa helstu eldamennsku. Ég verð nú bara að sýna þakklæti til tengdamóður minnar fyrir að hafa alið elskuna mína svona dásamlega upp eins og á hefur reynt. Er minn hugljúfi svona oftast ... þarf nokkuð að útskýra það frekar?
Hugarfóstur
Þessi flís eins og ég kýs kalla þessa tegund af efni, gerði ég fyrir sjálfa mig. Af öllum þeim tugum sem ég hef gert og hvíla víða þá ákvað ég að gera eina fyrir heimilið. Dóttir mín, þessi elska hefur oft sagt "mamma þessi er fyrir okkur" og ég jafnan sagt, já já, en einhvernvegin hefur engin staldrað við. Reyndar var ein flís sem var gerð í tilraunaskyni, mun stærri og þyngri sem ég ætlaði alls ekki að selja ....
Með kaffi í hönd ... og stjúpur út um allt ......
Þessi flís átti aldrei að fara úr húsi en rataði á sinn máta til síns heima. Svonna er þetta bara!
Á morgun sem er dagur sem styttist í og ég sit hér enn vakandi, get ekki sofnað og held heljartaki í svefnlausu konuna sem ég kynntist á Íslandi fyrir mörgum árum. Hún er glaðvakandi og hlær að mér. Hún er hluti af mér og neitar að halla augunum og segir, hí á þig ..... Ég er samt ákveðin að vinna þessa baráttu og svæfa hana, svæfa litlu baldintátu sem vill ekki kúra við hljóð himins og hamingju. Og síðan ekki söguna meir. Ég er alveg viss að það líða 7 mínútur frá því ég set geiflurnar í glas (bursta þær lúmsku) og þar til augun skýla sálinni fyrir birtu nætur.
Góða nótt kæru þið sem hafið litið við.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:27 | Facebook
Athugasemdir
santo mayor adefesio me
concepto que comilona.
abrazar
quieto nunca para orgíu.
ladera
Solla Guðjóns, 17.10.2008 kl. 00:59
Einn daginn mun ég biðja þig um flís inn á mitt heimili, ég bara elska þær!
7 er góð tala
Sporðdrekinn, 17.10.2008 kl. 02:18
Tær eru bara svo yndislegar flísarnar tínar...Gott hjá tér ad ætla helga tig listinni.
Knús úr fallegu haustinu í Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 17.10.2008 kl. 06:44
Þú ert svo falleg
Hrönn Sigurðardóttir, 17.10.2008 kl. 08:44
Þú er yndisleg og góð.
Kristín Katla Árnadóttir, 17.10.2008 kl. 10:25
Gott að kunna að elda góðan spænskann mat
ég vona að þú hafir náð að sofna
á 7 mínútum og flísarnar þínar eru algjört æði, langar einhvern tímann að eignast 1 - 2 
Guðborg Eyjólfsdóttir, 17.10.2008 kl. 11:49
Góðan föstudaginn vonandi og góða aðfararnótt laugardags ... hlýjar sofðuvelkveðjur héðan frá Akureyri.
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 19:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.