29.10.2008 | 09:53
Að skyrpa í lófana ....
Hrollur í kroppnum þennan morguninn. Það blæs köldu á spánlendinga og víða hefur snjóað í norðri lands. Aldrei að vita nema ég setji bara jólalögin á því þessi óvænti snjór kemur heldur snemma í ár.
Útivið er markaðurinn á fullu og kona vaknaði við sígaunasöngl og kliður við uppsetningu á básum. Fyrir neðan svefnherbergisgluggan minn er ávaxtastandur, spurning um að kasta fléttunni niður og kanna hvort einhver klifri upp
Í gær fór ég erinda og heimtaði Breddan að fljóta með. Mærin ferðabjó sig og setti á sig glimmeraugnskýlu, ekki beint gleraugu en hún ætlaði að ganga í augun á fljúgandi hröfnum og öðrum virðulegum mönnum.
Sjá bjútíkvínið, hallar sér að tré og horfir með aðdáun á sveiflu eldri borgara í golfi. Ég bíd ekki í það þegar hún tekur uppá því að skella sér á ströndina. Allavega, hún er byrjuð að mála (viss um að hún biðji um birtingu þegar listaverkið verður klárt) ..... svo bað hún Guð um kisuling þegar við fórum með baenirnar í gaerkvöldi.
Reffileg að faera sig uppá skaft!
Vildi að ég vissi hvaða spenna ólgar í mér, þykist viss um að þetta er eitthvað gott og óþarfi að spá eitthvað meira í það. Ég þarf að taka myndir af nýjustu þakflísunum sem eiga að fara á www.zordis.com en ég er að láta útbúa sér flipa fyrir flísarnar og svo uppfaerist síðan 1x í mánuði ef konan skyrpir í lófana og sýnir dugnað.
Ég aetla að fara í göngutúr og freista gaefunnar, en þú ......
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:57 | Facebook
Athugasemdir
Ég er svo mikil pempía að ég sé mig ekki skyrpa í lófana án þess að þvo mér strax!
Ég fór í göngutúr í vinnuna í morgun ... yndislegt alveg!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 10:50
Hafdu tad bara í huga med flettuna ef tú setur hana nidur tá verdur traffík engin spurning.En góda vid tad tá hefuru val
Breddan bara farin ad færa sig upp á skaptid....
Ég er ad svara póstunum mínum :Nú er fólk farid ad hafa samband vid mig frá íslandi um tad hvort ég gæti hjálpad med bradabyrgdahúsnædi ,vinnu og íbúd.
Ég segji já engin spurning..Ég reyni tad ef ég get verid einhver hjálp.Svona er ísland í dag.
Eigdu gódann dag elskuleg.
Gudrún Hauksdótttir, 29.10.2008 kl. 12:25
Farðu á markað - fyrir mig
Komdu til baka með slatta af appelsínum, það hlýtur að vera æði að hafa þetta fyrir utan gluggann.
Hress hún Bredda, svo hugguleg með veskið og í fínu skónum sínum
Margrét Birna Auðunsdóttir, 29.10.2008 kl. 13:23
ooooooo æði sígaunasöngvar..já flott hún Bredda, gasalega fott briller og skór
alva (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 13:43
Breddan bara komin á stjá, gott hjá henni, tekur sig vel út.
Kærleikur til þín yndislega, góða kona
Kristín Gunnarsdóttir, 29.10.2008 kl. 15:20
Þú ert alveg hreint yndisleg. Bið að heilsa Breddunni
Guðborg Eyjólfsdóttir, 29.10.2008 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.