Með stjörnublik í auga ...

... Og Megas syngur fyrir mig fallegar vísur.

Ég var svo dugleg í gær að ætla að blogga og byrjaði á færslu og innsetningu á myndum .... í millitíðinni ætlaði ég að leggja ungkarlinn á heimilinu, Enrique 8 ára og ég ranka ekki við mér fyrr en klukkan hálfþrjú og elskulegt Fjallið búinn að slökkva á tölvunni og færslan er ráfandi um alheimshvolfið án festunnar góðu.

Ég er búin að vera að föndra undanfarið og líður eins og í gamla daga þegar ég var 10 árum yngri og bjó í lítilli blokkaríbúð nokkuð vinafleiri en í dag.  Flutningur til fjarlægra landa hefur oft þau áhrif að vinskapur verður með öðrum hætti.  Í dag bý ég í stórri blokkaríbúð og á þessum 10 árum hef ég kynnst mætu fólki og yndislegum fjölskyldum.  Í þessu fólki hef ég eignast dásamlega vini sem hafa horfið á ný til ættjarðarinnar.   C´est la vie! 

Heart auminginn litli hún ég, vinalaus og allslaus Heart

Með stjörnublik í auganu

Yfirlýst og hálfmonsterleg en myndin var tekin í gaer á degi hrekkjavökunnar.

Fyrsta strokan ...
Fyrstu strokurnar
Krummi karlinn kominn
Karlinn minn hann Krummi
Daman komin með smá útlínur
Í meyjarfaðminum
Komin á vegg til virðingar
blönduð taekni á striga

Komin á vegg svo kjérling geti virt og borið virðingu fyrir myndefninu.  Það er engin launung að Krummi karlinn er í mestu uppáhaldi hjá mér, var og er!  Ekki það að ég er að kisulyngast með afturgengna kattarsál.  

Vona að þið hafið haft gaman af þessu myndabrölti mínu en nú bíða 7 saetar laeður með 7 fjólubláar slaeður eftir fyllingu litanna.

Ég aetla að skella mér í morgungönguna þrátt fyrir að það sé eiginlega komið hádegi í Paradís.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Krummi er líka minn uppáhalds.........

Bezt að ég skelli mér líka í morgungöngu og reyni að rífa mig upp úr aðstæðum sem ég kæri mig ekki um að vera í.

Flott myndin þín og konu með krumma og ég hlakka til að sjá sætar læður með fjólubláar slæður.  

Hrönn Sigurðardóttir, 1.11.2008 kl. 10:59

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Krumminn er örugglega í uppáhaldi margra íslendinga...Falleg myndin tín elsku Zordís.

Kvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 1.11.2008 kl. 11:52

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Bara góð mynd af þér og málverkið þitt lika elsku Zordís

Kristín Gunnarsdóttir, 1.11.2008 kl. 13:20

4 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu ljúfa helgi Elskuleg

Brynja skordal, 1.11.2008 kl. 14:20

5 Smámynd: Hugarfluga

Risa risa risa faðm til þín, bloggvinkona og puðr frá bumbudísinni. 

Hugarfluga, 1.11.2008 kl. 17:12

6 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Alltaf gaman að fylgjast með myndunum þínum. eins og þú er ég hrifinn af honum krumma, en hef ekki málað hann. Hafðu góða helgi ljúfan.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 1.11.2008 kl. 18:22

7 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Kveðja frá Reyðarfirði, hingað komst hún

Ég er einstaklega hrifin af krummamyndunum þínum, krummi er svo skemmtilegur og kátlegur fugl og mér finnst þú ná karakternum hans. Einu sinni var ég næturvörður í Sædýrasafninu sáluga og þar var taminn hrafn sem hélt mér félagsskap á nóttunni. Hann var alltaf að sníkja bita og gróf það sem hann fékk hér og þar en hirti svo ekkert um það meir, en það mátti passa sig að vera ekki að sniglast nálægt matarfelustöðunum hans, þá var hann kominn í lappirnar á manni. Ég væri alveg til í að eiga taminn hrafn sem gæludýr, kannski ég fari að vinna í því bara

Margrét Birna Auðunsdóttir, 1.11.2008 kl. 20:26

8 Smámynd: Sporðdrekinn

En gaman að fá að sjá myndina fæðast á striganum  Ég segi nú eins og fleiri Krummi er minn fugl.

Göngugarpur segir konan, það er gott að "heyra"  

Sporðdrekinn, 2.11.2008 kl. 02:59

9 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Ég er einmitt pínu hrædd við þennan flutning til fjarlægra landa, kallinn minn er liggur við búinn að pakka niður og vill fara héðan úr kreppulandinu, en ég er pínu hrædd við þetta

En myndirnar þínar standa alltaf fyrir sínu þær eru æði

Guðborg Eyjólfsdóttir, 2.11.2008 kl. 10:38

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Lumar þú ekki á góðum krummasögum? Ég elska slíkar. Myndirnar eru frábærar.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.11.2008 kl. 11:55

11 Smámynd: Tína

Efast um að þú sért vinalaus yndið mitt. Enda gull af konu og yndisleg í allir staði. Síðan er svo áreynslulaust að vera í kringum þig. Enda naut ég samverunnar við þið í ræmur.

Ég tel þig í það minnsta til minna vinkvenna krútta.

Tína, 2.11.2008 kl. 13:19

12 Smámynd: Margrét M

þú ert fráááábær

Margrét M, 2.11.2008 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband