Þögnin getur verið hávær.

Í hljóði ég hlusta á þig og finn fyrir nærveru þinni.  Þú ert samt farin, farin svo langt í ferðalagið eina.

Elskuleg vinkona mín kvaddi og hélt för sinni áfram í annan heim.  Lífið er vissulega grimmt en samt svo ljúft.  Ég held að við séum aldrei tilbúin að kveðja en í huggun ég sefa sjálfið með því að vita að nú líður þér betur, nú ert frjáls eins og fuglinn.

Gulu rósirnar mínar blómstra svo fallega núna og svei mér ef þær brosa bara ekki sínu breiðasta.  Ég fór og spásseraði bæjinn minn þverann og endilangann á háum hælum.  Já, svona var mín vitur, aðeins aum í einni tánni og næst skóa ég mig betur upp.

Ég fór og gekk um hellna hverfið og stóð á þakinu á veitingastað sem var líka verönd annars húss.  Já, næst tek ég myndavélina með og smelli nokkrum góðum á ferð minni.  Fór á pósthúsið og sendi krúttlega loðfóðraða skó í póst og eitt stk brjóstarhaldara.  Gekk svo framhjá kirkjunni og blessaði mig í bak og fyrir.  Ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum.

Gömul hjón

Svo krúttuð litlu álfahjónin ....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Kærleikskveðja til þín Þórdís mín ljúfasta.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.11.2008 kl. 15:04

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

englavink frá mér

Hrönn Sigurðardóttir, 3.11.2008 kl. 16:34

3 Smámynd: Didda

Kærleikskorn í hjarta þitt

Didda, 3.11.2008 kl. 16:47

4 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Samhryggist.

Margrét Birna Auðunsdóttir, 3.11.2008 kl. 17:20

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Æ elsku Zordís mín. Er med tér í huganum og sendi tér hlýjuna .

Kvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 3.11.2008 kl. 17:41

6 Smámynd: Hugarfluga

Samúðarkveðjur, Þórdís mín.  Blessaðar séu góðu minningarnar, því þær ylja hjartaræturnar okkar. 

Hugarfluga, 3.11.2008 kl. 18:18

7 Smámynd: Inga María

..haltu áfram að segja okkur frá svona yndislegum stöðum

Inga María, 3.11.2008 kl. 19:45

8 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Samhryggist, vinkona.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.11.2008 kl. 22:18

9 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég samhryggist þér Zordis mín

Sporðdrekinn, 3.11.2008 kl. 22:35

10 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Ég sendi þér samúðarkveðjur Zórdís mín

Kristín Gunnarsdóttir, 4.11.2008 kl. 09:48

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég sendi þér elsku Þórdís mínar innilegustu samúðarkveðjur kærleikskveðja.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.11.2008 kl. 11:38

12 identicon

Elsku Zordis, ég samhryggist þér innilega vegna fráfalls vinkonu þinnar. Hjartans hlýjar kveðjur frá Akureyri

(og já ... ég er svo sammála því að stundum getur þögnin verið hrikalega hávær)

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 11:42

13 Smámynd: Brynja skordal

Samhryggist þér með Elskulega vinkonu þína zordis mín knús og fullt af faðmlögum til ykkar

Brynja skordal, 4.11.2008 kl. 12:41

14 Smámynd: Solla Guðjóns

Knús í bak og fyrir..

Solla Guðjóns, 4.11.2008 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband