4.11.2008 | 23:18
Týndur sími og rispaður bíll ...
... Já, týndur sími, ekki gott en samt ljúft! Ég tapaði símanum á sunnudagseftirmiðdegi og fattaði það ekki fyrr en seint í gærkvöldi að ég var eins og Palli litli sem var einn í heiminum.
Í dag átti ég að maeta á fund og sendi manninn minn að leita að símanum mínum á sítrónulendu hér í grennd! (já það er dýrt að laumast með nokkrar súrar sítrónur í skjóli hugans) ... Hvað haldiði .... ég rak heilan vegg í aðra hliðina á bílnum og varð súr eins og sítrónan sem ég tók í leyfisleysi á sunnudeginum.
Hefði betur raspað bílinn eins og væna kótilettu en svona refsar himnaherrann fyrir fávisku mannanna. Svooo í kvöld er ég búin að vera með hugann ofaní kápuvasanum og viti menn .... Síminn minn er búinn að vera þar í krampakasti hlæjandi að mér og er svo sætur og rauður og allt, ótrúlegt!
Gott að síminn er kominn í leitirnar og ég komin með nýtt sim kort og búin að ganga nokkra hektara í leit að elskunni litlu sem þagði heilu hljóði þegar ég hringdi og hringdi í mig í dag.
Smá rós í hnappagatið
Lífið er gott, yndislega breytilegt í því góða og því miður góða. Lítil skref í rétta átt gera allt svo miklu betra og ég segi bara er á meðan er! Svoooo setjum við bara smá plástur á kaggann .....
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:21 | Facebook
Athugasemdir
Knús til þín elsku vinkona mín !
þarf svo að heyra í þér við tækifæri !
Sigrún, 4.11.2008 kl. 23:45
Varast ber sítrónuhnuppl ef þær hafa þessar afleiðingar
Faðmlag á þig inn í nóttina
Solla Guðjóns, 5.11.2008 kl. 00:07
Jebb, lífið er sko bara gott.
Ásdís Sigurðardóttir, 5.11.2008 kl. 00:44
Sporðdrekinn, 5.11.2008 kl. 05:34
Þú hefur vonandi séð til þess að það sæi líka á veggnum........
Faðmlag til þín inn í daginn
Hrönn Sigurðardóttir, 5.11.2008 kl. 06:43
Gott ad síminn fannst.. Og sítrónur, tær látum vid liggja á milli hluta....
Knús á tig elskulegust
Gudrún Hauksdótttir, 5.11.2008 kl. 07:32
Stórt knús inn í daginn.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.11.2008 kl. 08:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.