Í upphafi skyldi endinn skoða, out and over ....

Saumavélin hefur öðlast sjálfstæði sitt á ný ... hún saumar eins og tryllt út árið!  Segi nú bara svona, hún heitir Alfa og er algjör saumavél, var keypt fyrir 10 árum og er glæný!  Ég var að gera við gallabuxur hjá dóttlunni og þegar Fjallið heyrði malið í vélinni þá fór hann og mætti með nokkrar buxur sem þurfti að renna í gegn um Ölfuna.  Svo tók kjéddlingin og setti upp einn fald og má segja að rokki feitt!

Ég fékk óvænta heimsókn sem var gaman að, við sátum úti með kaffi og konfekt og spjölluðum um heima og geyma.  Svo var elduð risapizza og einn ískaldur öllari fylgdi góðgætinu í mallann.

Jólarósin

 

Poinsettan er mjög svo jólaleg og mikil prýði sem ekki má vanta þegar skreytt er um jólin.

Ég átti reyndar 2 afspyrnufallegar jólarósir sem stóðu fram í september en því miður í fjarveru okkar brá af þeim heilsan og þær hurfu til upphafsins á ný.

Jukkan mín fékk snyrtingu í gær og litlu sætu blómálfarnir voru stökkvandi út um allt og flúðu í peningablómið sem hefur stækkað og stækkað ég veit bara ekki hvar þetta ætlar að enda.  Ég keypti peningablómið af sígaunakonu sem fyllti ljósopið mitt af mörgum öðrum plöntum.  Ég færði henni föt og nytjavörur sem nýttust henni.  Í staðinn spáði hún fyrir mér .....  

Á ástarfund þig sótti ....

   Set inn eitt stk. flís en ætlaði reyndar að setja inn aðra sem er einnig í vinnslu og stefnt er að klára á árinu.

Það tekur mig óratíma að setja inn myndir núna, þannig að ég ætla bara að hætta því og fara í sturtu og búa mig fyrir kvöldið.

Kona hefur ekki endalausa þolinmæði í svona smáleg verk þegar margt þarf að ditta að og framkvæma.  Börnin fóru með afa til Orihuela en þau gátu ekki beðið eftir því að hitta frænkurnar og ömmu músina sína.

   HeartHeart

Framtíðarspor

 Mikið er ég nú glöð að hafa náð inn flísinni sem er einnig í bígerð.  Þetta sannar bara að þolinmæðin þrautir allar vinnur og mér tókst að koma dúllunni inn.

Ég læt hér við sitja og ætla að baða konukropp!  Vildi að ég ætti Carmen rúllur því þá færi ég kurluð og sæt í kvöldverðarboðið.  Ég reyni bara að krulla eitthvað annað en sjálfa mig ......

Bóndinn situr fyrir framan arininn og spilar á gítar, þið getið rétt ýmindað ykkur hvað það er huggulegt að sitja hér við kertaljós og hlusta á kappann.  

Stína bloggvinkona mín danadrottning á afmæli í dag!  Til hamingju með daginn þinn í von um að þú hafir notið dagsins frísk.

Ég veð úr einu í annað núna en það er bara í lagi og langar mig að minnast á góða gjöf sem foreldrar mínir færðu okkur en það er matreiðslubók, "framandi & freistandi" bók um indverska og arabíska matreiðslu e. Yesmine Olsson!  Ég hlakka til að glugga í þessari bók og prófa að matreiða.

Ég á eftir að finna mér fórnarlömb sem verður boðið í mat!

Það styttist í 4 og núllið hjá mér .... rétt rúm vika!  Ó boj hvað ég hlakka til að verða meiri kona ...

Lovjú gæs and gels, 

over and out!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert aldeilis dugleg að sauma ekki ég en alltaf svo fallegt hjá þér bæði blóm og flís. Nú er vika í 4 og núllið hjá þér flottur aldur. Kær kveðja til þín og þinna

Kristín Katla Árnadóttir, 27.12.2008 kl. 19:17

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hugljúft og fallegt að vanda mín kæra

JólaLjós í hjartað þitt !

s

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.12.2008 kl. 21:26

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tad styttist ódum í enn einn tuginn mín kæra....teir eru nú ekki svo margir svo tetta er allt í gúddý.Sauma ,mála flís og ég veit ekki hvad og hvad .Dugnadar kona tykjir mér.

hjartanskvedja til tín.

Gudrún Hauksdótttir, 28.12.2008 kl. 07:44

4 identicon

Kem í kaffi fljótlega, ég er alltaf á leiðinni, alltaf á leiðinni......

Rósa (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 12:11

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Var að skoða myndirnar þínar! Vildi ég ætti fullt af peningum svo ég gæti keypt allar sem mig langar í......

Hrönn Sigurðardóttir, 28.12.2008 kl. 18:43

6 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Saumavélin, pensillinn er það ekki sama hvað þú tekur þér fyrir hendur. Þú ert sko listakona. Knús á þig.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 28.12.2008 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband