2.1.2009 | 13:13
Að vera fugl ...
... og svífa um loftin blá.
Að vera fiskur "hafmeyja" og finna hvernig hafið umlykur vanga þinn og gárurnar faðma konukroppinn .... Að vera í tengingu við sjálfið í því formi sem hugurinn leitar.
Ég er í senn fugl og fiskur en sit hér föst í konulíkama sem þrengir að sálinni. Úti er birtan svo björt og lokkandi er læðir súrefnisdropum í hjartað mitt.
Ég vona að stjörnurnar teikni sig í myrkrið því ég ætla að fara í lopapeysuna mína og læða mér uppá þak. Ég hef takmark í dag, lifa daginn og telja stjörnurnar í kvöld ....
... svo svíf ég í þoku hafsins og dett af skýjahnoðra í fangið á Fjallinu mínu!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Eg ætla líka að lifa daginn í dag, en ég ætla ekki að telja stjörnur. Ég ætla hins vegar að senda þér kærar nýárskveðjur og þakka fyrir allt á nýliðnu ári. 2009 verður frábært, fyrir tilstilli vina eins og þín ... það er fjársjóður að "eiga þig að" hér á netinu ... knús og kveðjur!
Og p.s. .... : jú, slátrið var frosið ...
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 13:18
Fín plön!!
Hrönn Sigurðardóttir, 2.1.2009 kl. 13:23
Knús kossar og kreistur á þig elsku vinkonan mín

Gleðilegt nýtt ár krúttan mín
Elín (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 14:18
Elska ad lifa daginn ,hvada dag sem er .Skellti mér líka í lopapeysuna mína og dreyf mig í gönutúr.... før min lille søde nums voksede fast vid min stol.
Svo lendiru léttilega í fangid á fjallinu tínu.
Knús til tín
Gudrún Hauksdótttir, 2.1.2009 kl. 18:44
Snilldar færsla mín kærasta
Solla Guðjóns, 2.1.2009 kl. 20:23
Æ, þú hafmeyjan mín með skáldahugann þinn ....
... svífðu á vængjum þöndum inní nýja árið.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.1.2009 kl. 22:52
Gleðilegt nýtt ár elsku Þórdís og takk fyrir vinsemd á liðnu ári. Megi þér og þínum farnast vel.
Marta B Helgadóttir, 2.1.2009 kl. 23:18
óska þér innilega gleðilegt nýtt ár og takk fyrir mig
lady, 3.1.2009 kl. 12:18
Alltaf gott að lesa bloggið þitt kærar kveðjur á nýju ári og takk fyrir allt elskan.
Kristín Katla Árnadóttir, 3.1.2009 kl. 14:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.