Saungl og járnaglamur ...

... Orðgljáfur sígaunans er tillir sér undir svefnherbergisgluggann minn hvern einasta miðvikudag fékk konuhró ekki til að rummska í djúpum svefninum. Öllu jöfnu kasta ég fléttunni niður og dillandi flamenco taktar smita hjartað.  Í dag átti frúin á heimilinu erfiðara með að rífa upp niðurlímd augun sem áðu loks hvílu klukkan 04.30 í morgun.  Dóttlan var andvaka og gat ekki fyrir sitt litla líf náð að tengjast draumaveröldinni. 

mariposa 

Í dag hófst lífið á ný, hversdagsleikinn í allri sinni dásamlegu mynd eftir slugs og slangur jólanna.  Að snúa sólarhringnum við er sennilega það sem við gerum vel flest, vökum svo frameftir við allskyns dundur er við toppum á gamlárskvöldi!  Róður hátíðanna tekur sinn toll með einhverju móti ........

Heart 

Strendur Barcelona eru þaktar hvítri slæðu sem gerir það að verkum að það er kallt hjá okkur, svoooo kallt að fara í svefnrofanum í skólann.    Ískaldur andblærinn nær að hrinda við okkur og við þurfum að klappa okkur á lær.  

Í ljósopinu er hætt við að blómálfarnir taki morgunleikfimina af miklum krafti sökum kuldans okkar.  Híasintan hlær og státar sínu skrauti sem er meira en jólarósin getur gert því hún er hálf lummuleg blessunin.  

Haustið er búið að vera óvenju gott og viðburðaríkt.  Vetur konungur gekk í garð þann 21 desember samkv. dagatalinu og hefur aðeins borið á rigningu og nú kulda.  

Það styttist í vorið ......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yeeeeessssssss  það er alveg að koma sumar............

Rósa (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 10:01

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

úff já... hér var vakað til kl. 04.30 líka.... en ég kenni kaffidrykkju sjálfrar mín um ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 7.1.2009 kl. 10:15

3 Smámynd: Margrét M

bíð eftir sumrinu

Margrét M, 7.1.2009 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband